Trampólín.is hefur selt yfir þúsund trampólín til ánægðra viðskiptavina
„Við höfum algerlega sérhæft okkur í þessu undandarin ár, við erum alltaf með sama framleiðanda og sömu gerð ár eftir ár, ólíkt mörgum sem eru meira að eltast við lægsta verð hverju sinni. Við höfum einnig þá sérstöðu að við bjóðum upp á varahluti fyrir trampólín, meðal annars í tæki sem hafa verið keypt annars staðar. Fátt er leiðinlegra en að þurfa að kaupa nýtt trampólín af því eitthvað hefur gefið sig í annars heilu trampólíni sem maður á fyrir – en við björgum því. Við leggjum áherslu á góða þjónustu við þá fjölmörgu sem nota trampólín, við erum ekki bara að selja þessi tæki.“
Þetta segir Gunnar Árnason hjá fyrirtækinu Trampólín.is. Um er að ræða vefverslun sem stofnuð var 2013 en auk þess veitir fyrirtækið persónulega þjónustu eins og hér hefur verið nefnt. „Við höfum selt yfir 1000 trampólín og allir okkar viðskiptavinir hafa verið mjög ánægðir. Auk þess erum við með alla varahluti sem þig kann að vanta í trampólínið þitt,“ segir Gunnar.
Auk trampólína býður Trampólín.is líka upp á hoppukastala og línuskauta.
Fyrir utan vefverslunina rekur Trampólín.is líka hefðbundna verslun að Mörkinni 1-3 (inngangur baka til). Verslunin er opin virka daga frá kl. 15 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Síminn er 588 9930 og netfang trampolin@trampolin.is.
Sjá nánar á vefsíðunni trampolin.is.