fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
FókusKynning

Fyrirtaks veitingar í erfidrykkjur, fermingarveislur, brúðkaup og afmæli

Kynning

Smurbrauðsstofa Sylvíu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 11. apríl 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Pétursdóttir, matreiðslumeistari með diplóma í danskri smurbrauðsgerð, rekur Smurbrauðsstofu Sylvíu að Laugavegi 170. Þar er boðið upp á veisluþjónustu auk þess sem starfræktur er lítill veitingastaður þar sem boðið er upp á súpu og smurbrauð í hádeginu, en þetta nýta sér margir sem vinna í nágrenninu. Guðrún keypti fyrirtækið af tengdamóður sinni, Sylvíu, í fyrravor, en Sylvía, sem er lærð smurbrauðsjómfrú frá Danmörku, rak Smurbrauðsstofu Sylvíu í aldarfjórðung. Þetta er því fyrirtæki sem stendur á gömlum og traustum grunni og sérhæfir sig í sinni kunnáttu og færni.

„Ég held að danska smurbrauðið gefi okkur ákveðna sérstöðu því fyrir utan Jómfrúna við Lækjargötu eru engir aðrir sem leggja alla áherslu á danskt smurbrauð,“ segir Guðrún Pétursdóttir. Hún lærði matreiðslu fyrst í Perlunni, fór síðan í formlegt matreiðslunám og útskrifaðist sem meistari. Smurbrauðsgerð lærði hún af tengdamóður sinni og lauk diplóma með lokaprófi að viðstöddum prófdómara, en fagið er ekki kennt á Íslandi.

Smurbrauðsgerðin verður áfram þungamiðjan í starfseminni en auk þess býður Guðrún upp á ýmislegt annað, til dæmis tapasrétti, kökuhlaðborð og skrautlegar og afar girnilegar brauðtertur.

Erfidrykkjur, brúðkaupsveislur, fermingarveislur, afmæli

„Ég sinni mikið erfidrykkjum og brúðkaupsveislum. Einnig leita fyrirtæki oft til mín og panta fundarbrauð. Síðan eru það líka afmælisveislur, fermingarveislur og fleiri stórveislur,“ segir Guðrún.

Hún afgreiðir pantanir um helgar ef pantað er fyrir helgi og er sú þjónusta mikið notuð. Aðspurð viðurkennir Guðrún að hún sé alltaf vinnandi en hún hafi líka afar gaman af vinnunni.

Veitingastaðurinn að Laugavegi 170 er opinn virka daga frá kl. 11 til 17 en tekið er við pöntunum á öðrum tímum í síma 552-4825. Facebook-síða Smurbrauðsstofu Sylvíu er mjög lífleg, þar gefur að líta myndir af fallegum og skrautlegum réttum og reglulega eru í gangi skemmtilegir verðlaunaleikir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum