
PLATINUM hefur nú fengið gæðavottun frá hinu heimsþekkta og virta vottunarfyrirtæki TÜV Rheinland þar sem staðfest er að ferskt kjötinnihald sé langt yfir viðmiðunarmörkunum. Til að uppfylla viðmiðin þarf ferskt kjöt að vera 50% eða meira, en í hundafóðrinu frá PLATINUM er það 70%. Auk þess fá framleiðendur PLATINUM vottun fyrir nákvæma og sanna birtingu upplýsinga um innihald á vöruumbúðum og gæðavottun fyrir prófanir sem tryggja að fóðrið er laust við hættuleg innihaldsefni.
Að baki gæðavottuninni liggja ítarlegar vísindarannsóknir sem meðal annars fela í sér efnafræðilegar og örverufræðilegar greiningar. TÜV Rheinland er leiðandi gæðavottunarfyrirtæki í heiminum og var stofnað árið 1872. Nánar má lesa um gæðavottunina og TÜV Rheinland hér.
PLATINUM hundafóðrið er fyrir alla hunda og hefur notið mikilla vinsælda hér á landi undanfarin ár. Líney Björk Ívarsdóttir og Sigrún Valdimarsdóttir reka PLATINUM Ísland og segja þær þetta meðal annars um gæði og innihald fóðursins:
„Fóðrið er þurrkað varfærnislega við stofuhita svo hið frábæra bragð og próteininnihaldið varðveitist vel. Platinum hentar sérstaklega vel fyrir matvanda hunda, þá sem eru með viðkvæman maga og/eða þjást af húð- og feldvandamálum. Einnig er mikilvægt að geta þess að fóðrið getur hentað vel hundum sem eru með ofnæmi þar sem við notum ekki erfðabreytt korn eða hrísgrjón og ein vörulínan er alveg kornfrí. Fleiri kornfríar bragðtegundir eru svo væntanlegar á næstunni.“
PLATINUM hundafóður er selt hér á landi í gegnum vefverslun á síðunni platinum.is. Enn fremur er fóðrið gjarnan pantað í gegnum síma en símanúmerin er að finna hér að neðan. Platinum er einnig selt í Dekurdýrum á Dalvegi og hjá dýralækninum í Keflavík. Hjá Dýralækninum í Mosfellsbæ fæst hluti af vörulínunni.
PLATINUM Ísland ehf.
www.platinum.is
www.platinum@platinum.is
Líney Björk Ívarsdóttir
Ásbúð 23, Garðabæ
Sími: 899 – 6555
Sigrún Valdimarsdóttir
Elliðavöllum 13, Reykjanesbæ
Sími 862 – 6969