Björgvin hefur nú gert upp hug sinn og hann ætlar ekki að bjóða sig fram að svo stöddu. Þetta tilkynningar hann í langri færslu á Facebook-síðu sinni.
„Langar þig að verða forseti? Það var spurningin sem Karen konan mín spurði mig að þegar èg sagði henni fyrst frá draumi mínum um að langa að verða forseti Íslands. Draumur sem varð fyrst til inni á BUGL 8 ára gamall, sá draumur styrktist við móttöku á fálkaorðu 15 árum síðar, sá draumur varð síðan aðeins raunverulegri með útgáfu barnabókarinnar minnar (Barn verður forseti) í desember 2022 og varð draumur þessi svo fyrst spennandi þegar Reykjavík síðdegis og Vísir.is stóðu fyrir könnun fyrir rúmi ári síðan þar sem fram kom að um 40% aðspurðra gátu séð mig fyrir sér sem forseta Ísland,“ segir Björgvin meðal annars.
Björgvin segir að hann langi að verða forseti, það sé aðeins einn af þeim mörgu draumum sem hann á.
„En ekki núna. Ég tel mig ekki nægilega lífsreyndan til þess að vera forseti. Eins eru allskonar aðrir draumar að flækjast fyrir mér sem ég þarf að uppfylla fyrst. Þeir draumar tengjast íþróttum, börnunum mínum og öllum hinum börnunum. Það má leyfa sér að dreyma og eins og Vigdís Finnbogadóttir orðaði það við embættistökuna 1980 „Vér erum þelið sem draumar spinnast úr“ Áfram Ísland!“
Færslu Björgvins má lesa í heild sinni hér að neðan: