Fréttablaðið skýrir frá þessu og segir að SI hafi sent sveitarfélögunum bréf um þetta.
„Eins og verklag umræddra framkvæmda hefur verið í sumar þá hefur fræsun og malbikun að meginstefnu verið framkvæmd á dagvinnutíma á virkum dögum með tilheyrandi umferðartöfum á höfuðborgarsvæðinu.“
Segir meðal annars í bréfinu. Einnig segir að aðildarfyrirtæki samtakanna hafi vakið athygli á því óhagræði sem tafir vegna malbikunar valda.
„Sér í lagi fyrirtæki sem grundvalla starfsemi sína á að koma til skila vörum eða sækja vörur, s.s. afhending á aðföngum eða sorphirða svo dæmi séu tekin.“
Einnig segir að framkvæmdaaðilum megi vera ljóst að verulegar umferðatafir verði þegar malbikað er að degi til, sérstaklega á umferðarþungum götum.
„Ljóst er að þetta felur bæði í sér óhagræði fyrir bæði atvinnulíf og almenning, svo ekki sé talað um umhverfisáhrif, svo sem losun gróðurhúsalofttegunda, þegar bílar eru langtímum saman í umferðarteppu.“
SI segja einnig að ábendingar hafi borist um að víða sé merkingum og viðvörunum um framkvæmdir, hjáleiðir og annað tengt framkvæmdunum ábótavant.
„Samtökin telja verulega mikilvægt að upplýsingaflæði, aðvaranir og leiðbeiningar séu með skýrum hætti og aðgengilegar, til að varna álagi kringum framkvæmdasvæði og liðka fyrir umferð.“