fbpx
Sunnudagur 16.nóvember 2025

Þið eruð bölvaðir plebbar!

Svarthöfði
Sunnudaginn 24. maí 2020 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað er að frétta?“ hugsaði Svarthöfði í síðustu viku þegar Ekki-Júrógleðin svonefnda hófst á RÚV. Hvers konar gúrkutíð er í gangi í samfélaginu okkar þegar við erum farin að halda upp á að það sé ekki Eurovision-keppni?

Þarna fékk þjóðin að kjósa um hvaða lag hefði fengið 12 stig frá Íslandi, hefði Eurovision-keppnin verið haldin, og að sjálfsögðu var rukkað fyrir hvert atkvæði. Þetta hlýtur að vera nýtt met í plebbaskap.

Til að kóróna þetta allt grenjuðu landsmenn sig svo í svefn, því Daði okkar og Gagnamagnið unnu viðlíka plebbakeppni á öðrum Norðurlöndum.

Um ókomna tíð verður 2020 minnst sem ársins þar sem Ísland hefði átt að vinna Eurovision. Enginn mun sannfæra okkur um neitt annað. Ætli RÚV fari að gera þetta með fleiri hluti? „Hringdu inn þitt atkvæði til að kjósa um hvern þú hefðir kosið ef það væru Alþingiskosningar í dag.“ „Hringdu inn þitt atkvæði um hver hefði átt að fara heim í nýjasta þættinum af Bachelor.“ „Hringdu inn þitt atkvæði ef þú vilt styrkja ríkisrekinn fjölmiðil um 150 krónur af því bara.“ Svarthöfði gæti vel hugsað sér að eigna sér álíka gullgæs: „Hringdu inn þitt atkvæði um hvaða skyndibita Svarthöfði ætti að fá sér, ef hann væri svangur.“

Annar plebbaskapur var biðröðin fyrir utan sundlaugarnar þegar klukkan sló miðnætti þann 18. maí. Frábær hugmynd, Íslendingar. Troðið ykkur í smithættu í þéttri biðröð til að troða ykkur saman í sameiginlegar sturtur og sameiginlegt sýklabað.

Eru til lyf við svona vitleysu? Það getur ekki verið svona nauðsynlegt að fara í sund, að fórna megi þar heilsu samfélagsins fyrir að liggja í klórmettuðu bleyti í hálftíma, er fólk ekki almennt með baðkar eða sturtu heima hjá sér? Það er eina skýringin sem Svarthöfði gæti sætt sig við, ef þessir plebbar í sundröðinni höfðu beðið í tvo mánuði eftir alþrifum.

Svo verða líkamsræktarstöðvarnar opnaðar eftir helgi og Svarthöfði getur rétt ímyndað sér maníuna sem mun eiga sér stað þar. Sem er sjúklega fyndið því áður en samkomubannið var hert í það form sem það hefur verið undanfarið og Covid-19 rétt byrjað, mátti varla sjá hræðu í ræktinni því allir voru að tapa sér úr hræðslu.

Núna hins vegar, í nánast sambærilegu samkomubanni, því það er jú enn samkomubann, þá eru allir bara svo sjúklega graðir í gamla lífið sitt að þeir eru tilbúnir að nánast hanga á hestbaki á næsta manni í þéttri röð til að lyfta lóðum upp úr svita annarra.

Getum við ekki bara fokkin tjillað og haldið áfram að hamast með ketilbjöllurnar og jógadýnurnar sem við hömstruðum hérna í upphafi samkomubannsins, aðeins lengur? Svona áður en við dröslum þeim í Góða hirðinn og höldum áfram að slefa í hnakkann á næsta manni.

Ekki vera plebbi!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svarar fyrir meint framhjáhald – Segist ekki hafa verið að stinga undan konunni

Svarar fyrir meint framhjáhald – Segist ekki hafa verið að stinga undan konunni
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Segjast ekki enn hafa fengið greitt fyrir söluna á Cafe Adesso og Sport & Grill

Segjast ekki enn hafa fengið greitt fyrir söluna á Cafe Adesso og Sport & Grill
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Vandræðaleg mistök innflytjendastofnunar Trump – Reyndu að vísa frumbyggja úr landi

Vandræðaleg mistök innflytjendastofnunar Trump – Reyndu að vísa frumbyggja úr landi
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

5 hlutir sem þú ættir að henda strax af baðinu

5 hlutir sem þú ættir að henda strax af baðinu
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Rekinn fyrir að mæta ekki í vinnuna og krafðist þá bóta

Rekinn fyrir að mæta ekki í vinnuna og krafðist þá bóta
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Mbappe gefur lítið fyrir eigið afrek

Mbappe gefur lítið fyrir eigið afrek
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Starfsmaður Landspítalans fletti upp í sjúkraskrá án heimildar – Gaf upp ástæðu sem stóðst ekki skoðun

Starfsmaður Landspítalans fletti upp í sjúkraskrá án heimildar – Gaf upp ástæðu sem stóðst ekki skoðun
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þessir fimm virðast geta bókað sæti með enska landsliðinu á HM – Voru sendir í leynilega myndatöku

Þessir fimm virðast geta bókað sæti með enska landsliðinu á HM – Voru sendir í leynilega myndatöku
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Messi olli vandræðum fyrir Íslendinga á Spáni – „Hafi eiginlega verið pirrandi“

Messi olli vandræðum fyrir Íslendinga á Spáni – „Hafi eiginlega verið pirrandi“