fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Breiðablik niðurlægt í Svíþjóð

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 20:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einvígi Breiðabliks og Häcken í átta liða úrslitum Evrópubikars kvenna virðist í raun ráðið eftir fyrri leik liðanna í Svíþjóð í kvöld. Sænska liðið reyndist mun sterkari aðilinn og vann afar öruggan sigur gegn Blikum sem stilltu upp breyttu liði undir stjórn nýs þjálfarateymis.

Breiðablik hafði áður slegið út dönsku meistarana Fortuna Hjörring, en síðan þá hafa orðið miklar breytingar á leikmannahópnum og þjálfaraskipti. Ian Jeffs stýrði liðinu í fyrsta sinn í keppnisleik.

Blikar héldu í við Häcken fyrsta stundarfjórðunginn en eftir það opnaðist vörn þeirra. Heimakonur skoruðu fimm mörk í fyrri hálfleik og var staðan 5-0 í leikhléi. Thelma Karen Pálmadóttir skoraði þá sitt fyrsta mark fyrir Häcken, en Fanney Inga Birkisdóttir stóð í marki sænska liðsins.

Häcken bætti svo við tveimur mörkum í seinni hálfleik. Herdís Halla Guðbjartsdóttir varði þó vítaspyrnu og kom í veg fyrir áttunda markið.

Seinni leikurinn fer fram á Kópavogsvelli eftir viku þar sem Blikar vonast til að sýna betri frammistöðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið