fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025

Er allt að verða vitlaust?

Svarthöfði
Sunnudaginn 13. september 2020 10:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið djöfull eru allir fljótir að tapa sér yfir smáhlutum. Íslendingar eru stórfurðulegir þegar kemur að því að velja sér tilefni til að frussa út úr sér 7up Free-inu af hneykslun. Eftir líka ógeðslega leiðinlegt sumar þar sem var bara nánast ekkert að frétta nema skæð kvefpest sem allir skjálfa á beinunum yfir, þá byrjar haustið með trompi. Trans Jesú, opinber druslusmánun og annar tittlingaskítur.

Svarthöfði ætlar að byrja á trans Jesú. Þjóðkirkjan, sem hefur barist við að halda stöðu sinni í þessu heiðingjasamfélagi sem við búum í, líkt og Sisyfos barðist við að velta steini upp fjall, ákvað að koma þeim skilaboðum á framfæri að kirkjan sé fyrir alla. Sunnudagaskólinn var auglýstur með litríkri mynd sem sýndi börn úr ólíkum bakgrunni í öllum litum koma saman til að fagna Jesú – sem var skeggjaður, brjóstgóður og kátur.

Hinir þröngsýnu og íhaldssömu voru fljótir að koma sér í skotgrafirnar. Jesús með brjóst? Hvað næst – Guð sjálfur með psoriasis? Þetta mátti ekki viðgangast. Ekki nóg með að það eigi að innræta börnunum að kirkjan sé fyrir alls konar fólk og Jesús sé líka alls konar, heldur var þessu guðlasti klínt utan á strætó.

Svarthöfða þykir hæpið að þeir sem hæst hafa gargað yfir þessari hneisu hafi nokkru sinni ferðast með strætó. Líklega fara sömu aðilar aldrei út úr reykmettaðri íbúð sinni þar sem þeir hámborða Prince Póló á meðan þeir fá útrás fyrir heilaga reiði sína á mylsnumettuðu lyklaborðinu til að predika að það sé heilagur sannleikur að Jesús hafi verið flatbrjósta með munaðarfull bringuhár og six-pack.

Svo voru það ungu konurnar sem fengu tækifæri til að eiga kvöldstund með ungstirnum úr enska landsliðinu. Svarthöfði er hvorki Jesús með brjóst né ung kona en hann hefði hiklaust gengið að tækifærinu að hitta fyrir vonarstjörnur Englendinga. Það hefði getað orðið ágætis kvöldstund. Við hefðum fengið okkur bjór og spilað veiðimann.

Drengirnir brutu þó sóttvarnalög er þeir tóku á móti gestum sínum. En treystum almenningi til að gleyma því á þremur sekúndum og byrja þess í stað að gagnrýna ungar konur fyrir að haga sér eins og ungar konur. Eigum við ekki næst að garga á endurnar á Tjörninni fyrir að borða brauð sem í þær er hent? Nei, í alvöru sko.

Að sjá fullorðið fólk, sem kemur jafnvel fram undir nafni, gagnrýna ungar konur og trans útgáfu af frelsaranum, er galið árið 2020. Svarthöfði veitir því einnig eftirtekt að fólkið sem hefur sig mest í frammi og er orðljótast í athugasemdum, er komið yfir fertugt. Það er nú mikið sagt ef vandræðaunglingarnir eru stilltari en fullorðna fólkið í opinberri umræðu. Trans Jesú gæti kennt ykkur ýmislegt um náungakærleikann. Því ekki hefur foreldrum ykkar tekist það, og tekst varla úr þessu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Birta dramatískar myndir af því þegar sonur leikstjórans var handtekinn

Birta dramatískar myndir af því þegar sonur leikstjórans var handtekinn
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Átta marka skemmtun á Old Trafford – Vandræði United á heimavelli halda áfram

Átta marka skemmtun á Old Trafford – Vandræði United á heimavelli halda áfram
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

„Ég er oft spurður að því hvernig ég fari að því að láta hestana elta mig“

„Ég er oft spurður að því hvernig ég fari að því að láta hestana elta mig“
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Séra Örn Bárður Jónsson: Samtímamenn Jesú skrifuðu Nýja testamentið – Kóraninn meira og minna skáldskapur

Séra Örn Bárður Jónsson: Samtímamenn Jesú skrifuðu Nýja testamentið – Kóraninn meira og minna skáldskapur
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Mikil reiði eftir að hrottalegur nauðgari slapp við fangelsisvist – Einn þolandi var nær dauða en lífi

Mikil reiði eftir að hrottalegur nauðgari slapp við fangelsisvist – Einn þolandi var nær dauða en lífi