fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025

Sadistar hjá Skattinum

Svarthöfði
Sunnudaginn 17. mars 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði er skattgreiðandi líkt og aðrir fullveðja Íslendingar. Tekur þátt í samneyslunni og leggur lóð sitt á vogarskálarnar. Svarthöfði kveinkar sér ekki yfir sköttum þótt þeir séu að sjálfsögðu allt of háir.

En Svarthöfði getur ekki varist þeirri hugsun að hjá Ríkisskattstjóra starfi fólk sem sé haldið sadisma. Að það hafi gaman af því að pína venjulega smælingja eins og Svarthöfða. Þessi hugsun kemur ávallt upp um þetta leyti árs þegar almenningur er neyddur til þess að setjast við heimilistölvuna og skila skattskýrslunni.

Þegar skattframtalið er opnað blasir við galli á menntakerfinu okkar. Á Íslandi er skólaskylda og allir landsmenn neyðast til þess að læra náttúrufræði, dönsku og hannyrðir. Aldrei er börnum kennt neitt um skatta eða skattskil. Skattframtalið er því ekkert annað en gildra sem ríkisvaldið leggur fyrir þegnana.

Íslendingar eru frestunargjörn þjóð og þetta veit ríkisskattstjóri, eða ríkisskrattstjóri eins og hann ætti að vera kallaður. Flestir bíða með þetta kvíðavaldandi verkefni fram á síðustu stundu, jafnvel rétt fyrir miðnætti áður en bjallan glymur. Fólk veit að það verður að skila þessu. Annars fær það „áætlun.“ Áætlun er það versta sem til er í augum Íslendingsins. Þá tæmir ríkisskattstjóri alla bankareikninga og tekur bílinn, sjónvarpið og heimilisköttinn í leiðinni.

Nötrandi á beinunum reynir fólk að plægja sig í gegnum framtalið á meðan klukkan tifar. „Reiknað endurgjald“, „Frádráttur frá tekjum“, „Staðgreiðsla af launum“, „Starfstengdar greiðslur“, „Önnur hlunnindi.“ Hvað í andskotanum þýðir þetta allt saman?

Síðan er ýtt á „senda“ en þá kemur iðulega upp villa. Villa er eins og kaldur og blautur löðrungur. Þá er aðeins tvennt í stöðunni.

  1. Grátbiðja um nokkurra daga frest. Borga svo rándýrum endurskoðanda fyrir að redda málunum.
  2. Reyna að krafsa sig fram úr villunni upp á von og óvon um að það sem maður sé að senda sé ekki rugl. Þetta er valkosturinn sem flestir taka.

Þegar framtalið fer loksins í gegn hjá Svarthöfða fyllist hann skömm og ótta. Skömm yfir því að vera svo heimskur að kunna þetta ekki og ótta við að skatturinn hirði aleiguna. Þetta er sjálfsagt sama tilfinning og fórnarlömb Nígeríusvindlara upplifa þegar þau gera sér grein fyrir að allt var í plati.

Við tekur mest stressandi partur af framtalinu. Að sjá hvort Svarthöfði skuldar skattinum eða öfugt. Þessi stund er eins og að taka þátt í rúllettu, jafn vel rússneskri. Og það er ekki laust við að illkvittnishlátur skattstjórans heyrist í hátölurum heimilistölvunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Hvað þýðir það þegar hundurinn þinn liggur á bakinu?

Hvað þýðir það þegar hundurinn þinn liggur á bakinu?
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Mourinho tjáir sig um Jota: ,,Alltaf hluti af fjölskyldunni á Anfield“

Mourinho tjáir sig um Jota: ,,Alltaf hluti af fjölskyldunni á Anfield“
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Líf eftir dauðann – Þegar þú deyrð veistu að þú ert dáinn

Líf eftir dauðann – Þegar þú deyrð veistu að þú ert dáinn
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Með þessu algenga kryddi getur þú haldið mýflugum fjarri alla nóttina

Með þessu algenga kryddi getur þú haldið mýflugum fjarri alla nóttina
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Glódís Perla í byrjunarliði Íslands – Steini gerir tvær breytingar

Glódís Perla í byrjunarliði Íslands – Steini gerir tvær breytingar
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Rýnt inn í framtíðina

Björn Jón skrifar: Rýnt inn í framtíðina
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Jónas Már segir kolröng skilaboð send til barna – „Ekki minnist ég að hafa séð svona skilti í minni æsku“

Jónas Már segir kolröng skilaboð send til barna – „Ekki minnist ég að hafa séð svona skilti í minni æsku“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hefja loksins viðræður við Rashford

Hefja loksins viðræður við Rashford
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Glannaakstur rútubílstjóra á Suðurlandi vakti reiði og ugg

Glannaakstur rútubílstjóra á Suðurlandi vakti reiði og ugg