fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Guðjón segir það ofbeldi og aldursfordóma að þurfa að endurnýja ökuskírteinið svo oft – Ungir ökumenn valdi flestum slysum

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 19:30

Guðjóni er ekki skemmt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, segir það ofbeldi og aldursfordóma að eldri borgarar þurfi að endurnýja ökuskírteini á tveggja ára fresti eftir 72 ára aldur. Segist hann ekki vita til þess að eldri borgarar valdi nokkrum skaða í umferðinni.

„Að eldri borgarar þurfi eftir 72 ára aldur að endurnýja ökuskírteini á tveggja ára fresti og eins árs fresti eftir áttrætt er að mínum dómi ofbeldi gegn þeim, hlaðið aldursfordómum,“ segir hinn 81 árs Guðjón í færslu á samfélagsmiðlum í dag.

Harðari reglur en í Evrópu

Sama sjónarmið hafi hann heyrt frá læknum og að lögin hér séu langtum strangari en í öðrum Evrópulöndum.

Nefnir hann sem dæmi að í Svíþjóð og Þýskalandi séu sömu reglur fyrir eldri borgara og alla aðra, það er að ökumenn þurfi að endurnýja skírteini á 15 ára fresti. Í Danmörku þurfi fólk á aldrinum 75 til 79 ára að endurnýja á 5 ára fresti og 2 til 3 ára eftir áttrætt. Í Finnlandi sé krafist endurnýjunar á 5 ára fresti eftir að 75 ára aldri er náð.

„Ekki veit ég til að eldri borgarar valdi nokkrum skaða í umferðinni umfram aðra, þvert á móti,“ segir Guðjón. „Þeir hafa langa reynslu af akstri og gera sér yfirleitt grein fyrir því þegar þeir eru ekki lengur færir um hann vegna lélegrar sjónar eða annars.“

Ungir valdi mun fleiri óhöppum

Vísar hann í tölur Samgöngustofu frá árinu 2025 þar sem komi fram að eldri borgarar, það er 67 ára eða eldri, hafi valdið 12 prósent umferðaróhappa. Það sé um það bil meðaltal af hlutfalli þeirra meðal þjóðarinnar. Ungir ökumenn, það er 17 til 26 ára, valda hins vegar 27 prósent allra óhappa í umferðinni.

„Ég krefst þess að lögum um ökuskírteini verði breytt í okkar þágu svo við þurfum ekki frekar en aðrir að standa í þeim leiðindum á hverju ári að sækja um nýtt ökuskírteini að undangenginni læknisskoðun,“ segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn