

Um er að ræða fyrstu vísbendingarnar um aðkomu Rússa að átökunum í Miðausturlöndum þó það sé aðeins með óbeinum hætti. Opinberlega hafa rússnesk stjórnvöld hvatt til þess að átökunum ljúki.
Átökin hafa stigmagnast hratt síðustu daga en heimildir Washington Post herma að frá því að stríðið hófst fyrir tæpri viku hafi Rússar miðlað upplýsingum til Írans um staðsetningu bandarískra herskipa og flugvéla.
Embættismennirnir vildu ekki tjá sig undir nafni vegna þess hve viðkvæmt málið er.
Ekki liggur fyrir hversu víðtæk aðstoð Rússa er, en samkvæmt upplýsingum Washington Post veiktist geta íranska hersins til að staðsetja bandarískar hersveitir mjög strax á fyrstu dögum átakanna.
Á sunnudag létust sex bandarískir hermenn og nokkrir til viðbótar slösuðust þegar Íranir gerðu drónaárás á bandaríska herstöð í Kúveit. Íran hefur á sama tíma skotið þúsundum árásardróna og hundruðum eldflauga á bandarískar herstöðvar, sendiráð og borgaraleg skotmörk.
Á meðan hafa Bandaríkin og Ísrael staðið fyrir sameiginlegum loftárásum á meira en 2.000 skotmörk í Íran. Þar á meðal eru stöðvar fyrir langdrægar eldflaugar, eignir íranska flotans og aðrir hernaðarlegir innviðir, auk skotmarka sem tengjast stjórnvöldum landsins.
Talskona Hvíta hússins, Anna Kelly, vildi ekki tjá sig um mögulega aðstoð Rússlands í samtali við blaðið. Hún tók þó fram að geta Írana til að gera árásir og verjast árásum minnkuðu dag frá degi.