

Barnaheill – Save the Children á Íslandi kalla eftir stuðningi við mannúðarstarf vegna harðnandi átaka í Mið-Austurlöndum. Lífi um 100 milljóna barna er nú ógnað á svæðinu. Áhrifanna gætir í að minnsta kosti í 15 löndum þar sem heimili, skólar og sjúkrahús hafa verið lögð í rúst. Börn búa þar við stöðugan ótta, ógn við lífi og heilsu, auk þess að eiga á hættu að vera neydd á flótta með fjölskyldum sínum.
„Hvert einasta stríð sem háð er í heiminum er stríð gegn börnum. Eins og alltaf sjáum við að börnin verða fyrir mestum skaða. Börn lifa í ótta, þau eru föst í skotlínunni í þessu stríði fullorðinna,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. „Hundruð barna hafa þegar verið drepin, og fleiri saklaus líf gætu tapast ef ekki er gripið til tafarlausra aðgerða. Stríð lúta alþjóðalögum, og það má aldrei leggja líf barna að veði í átökum.“
Neyðarsöfnun Barnaheilla er svar við neyðarkalli alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children sem sækjast eftir 20 milljörðum króna í mannúðarverkefni í Líbanon, Palestínu, Sýrlandi, Írak, Jórdaníu, Jemen, Tyrklandi, Pakistan og Afganistan. Barnaheill á Íslandi veita nú þegar börnum lífsnauðsynlega þjónustu í flóttamannabúðum í Norður- Írak.
Börn eiga aldrei að vera skotmark í stríði. Styðjum börn og fjölskyldur þeirra á svæðinu.
Hægt er að styrkja neyðarsöfnun Barnaheilla í gegnum heimasíðu samtakanna.