
Maður sem dvalið hefur ólöglega hér á landi hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir meðal annars fíkniefnasölu og peningaþvætti en maðurinn mætti ekki fyrir dóminn og óljóst virðist hvort hann sé enn á landinu eða fari hér huldu höfði.
Maðurinn var í fyrsta lagi ákærður fyrir fíkniefnalagabrot, peningaþvætti og brot á lögreglulögum með því að hafa, 14. júlí 2025, utandyra við Jafnasel í Reykjavík, óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að stöðva og hlaupið á brott undan lögreglu uns lögregla hljóp hann uppi og stöðvaði för hans stuttu síðar og haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 1,91 grömm af maríhúana og 4,36 grömm af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað sér og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð 26.000 krónur, sem lögregla fann við öryggisleit og lagði hald á
Í öðru lagi var maðurinn ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti með því að hafa, þennan saman dag, í íbúð að Klyfjaseli í Reykjavík, í félagi við þekktan aðila, haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 257,70 grömm af maríhúana og 6,39 grömm af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð 40.000 krónur, sem hann benti lögreglu á við leit og lagt var hald á.
Í þriðja lagi var maðurinn ákærður fyrir brot á lögum um útlendinga með því að hafa, dvalið í heimildarleysi hér á landi án vegabréfsáritunar og dvalarleyfis frá 2024, en hann fór huldu höfði hérlendis í kjölfar tilkynningar Útlendingastofnunar þar sem honum var tilkynnt um hugsanlega brottvísun og endurkomubann.
Loks var maðurinn ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti með því að hafa, 27. júlí 2025,utandyra við Hamraborg í Kópavogi, haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 30,38 grömm af maríhúana og 6,32 grömm af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað sér og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð 90.000 krónur, sem lögreglan fann við öryggisleit og lagði hald á.
Manninum var birt ákæran í Lögbirtingablaðinu þar sem ekkert er vitað um dvalarstað hans og því virðist ekki liggja fyrir hvort hann sé enn á landinu en ef svo er þá dvelur hann hér ólöglega og fer huldu höfði. Hann mætti ekki fyrir dóminn og var það metið sem ígildi játningar og var hann þar af leiðandi sakfelldur.
Maðurinn hlaut dóm hér á landi árið 2023 en þá var hann dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnasölu. Með brotunum í þessu máli rauf hann þetta skilorð og það var því metið honum til refsiauka. Við hæfi þótti því að dæma hann í þetta sinn í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.