

Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Financial Times um undirbúning og aðdraganda þess að Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, var drepinn í loftárás Bandaríkjanna og Ísraels um liðna helgi.
Í umfjölluninni kemur fram að Ísraelsmenn hafi fengið aðgang að nánast öllum myndavélum borgarinnar, sem írönsk stjórnvöld nota meðal annars til að fylgjast með andstæðingum stjórnarinnar og eigin þegnum, og þannig rakið ferðir lykilaðila.
Fram kemur að myndir hafi verið sendar til yfirvalda í Tel Aviv sem gerði Mossad kleift að afla ítarlegrar vitneskju um heimilisföng lífvarða, vinnuáætlanir þeirra og hverja þeir væru að vernda. Þá gátu þeir séð hvar þeir lögðu bílum sínum þegar þeir komu að höfuðstöðvum Khameini við Pasteur-stræti í miðborg Teheran.
Ísraelsmenn búa yfir mikilli tækniþekkingu eins og sannaðist þegar þeir komu fyrir sprengjum í 5.000 símboðum Hezbollah-liða á haustmánuðum 2024. Símboðarnir sprungu nær allir samtímis með þeim afleiðingum að fjölmargir liðsmenn samtakanna örkumluðust.
Eftirlit Ísraelsmanna í Íran er sagt hafa leitt til þess að Khamenei féll á laugardag eftir að flugvélar, sem flogið var beint frá Ísrael, skutu allt að 30 sprengjum á dvalarstað hans og fjölskyldu hans.
Í umfjöllun Financial Times kemur fram að það hafi ekki verið nein tilviljun að árásin var framin þennan tiltekna dag á þessum tiltekna tíma. Yfirvöld í Ísrael vissu nefnilega nákvæmlega hvar hann var eftir margra mánaða undirbúning.
Í umfjöllun blaðsins kemur einnig fram að ísraelska leyniþjónustan hafi truflað um það bil tólf farsímamöstur nálægt Pasteur-stræti, þannig að símar virtust uppteknir þegar hringt var í þá og öryggissveitir æðsta klerksins gátu ekki tekið við mögulegum viðvörunum.
„Við þekktum Teheran eins og við þekkjum Jerúsalem,“ segir ísraelskur njósnafulltrúi sem Financial Times ræddi við. CIA, bandaríska leyniþjónustan, er einnig sögð hafa haft uppljóstrara á svæðinu sem veitti mikilvægar upplýsingar.