fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Könnun Maskínu – Til þessara hópa sækja flokkarnir fylgi sitt

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 28. mars 2026 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðeins þrír flokkar sækja fylgi sitt frekar til karla en kvenna. Einn flokkur fær nánast allt sitt fylgi frá ungu fólki og tveir fá lang mest af sínu fylgi úr hverfum austan við Elliðaár.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í gögnum í könnun sem Maskína gerði fyrir DV um fylgi flokkanna í Reykjavík. En svörin voru greind eftir kyni, aldri, menntun, heimilistekjum og búsetu.

Mikill búsetumunur á fylgi Samfylkingar

Samfylkingin er stærsti flokkurinn í borginni og er fylgi hans því eðlilega nokkuð dreift. Helsti munurinn sést þegar litið er til búsetu. Það er að Samfylkingin er með hátt í 30 prósenta fylgi í miðborginni, Vesturbænum, Hlíðunum, Laugardalnum og öðrum hverfum vestan Elliðaáa. Á meðan fylgi flokksins er aðeins 14 prósent í hverfunum austan Elliðaánna. Það er Grafarvogi, Árbæ, Breiðholti og fleirum.

Þegar kemur að öðrum þáttum sækir Samfylkingin mest fylgi til kvenna, eldri borgara, háskólamenntaðra og tekjulágra.

Eldri karlar kjósa Sjálfstæðisflokkinn

Fylgi Sjálfstæðisflokksins er mun skiptara. Til að mynda nýtur flokkurinn nærri 25 prósenta stuðnings karla en aðeins rúmlega 17 prósent kvenna. Þrír hægrisinnuðustu flokkarnir, það er Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Okkar borg eru einu flokkarnir sem sækja meira fylgi til karla en kvenna.

Sjálfstæðisflokkur er mun vinsælli í hverfum austan Elliðaáa en vestan þeirra. Hann nýtur einkum fylgis þeirra sem eru 50 ára og eldri, með framhaldsskólapróf eða iðnmenntun og hátekjufólks.

Vinstrið vinsælt í Miðborginni

Viðreisn, sem er þriðji stærsti flokkurinn í könnuninni er með jafnasta fylgið þegar litið er til búsetu. Flokkurinn er vinsælastur hjá konum, ungu fólki, háskólamenntuðum og fólki með millitekjur.

Vinstrið, sem er hástökkvari könnunarinnar, fær mest fylgi úr miðborginni og Vesturbænum en er undir 10 prósentum austan Elliðaáa. Framboðið nýtur stuðnings tæplega 15 prósent kvenna en aðeins 10 prósenta karla. Framboðið höfðar einkum til fólks á fimmtugsaldri, með háskólapróf og lágar tekjur.

Ungt fólk hrifið af Pírötum

Miðflokkurinn er næst stærsti flokkurinn austan Elliðaáa með rúmlega 15 prósenta fylgi þar en innan við 8 prósent í öðrum hverfum borgarinnar. Hann höfðar einkum til karla, fólks yfir fertugu, með framhaldsskólapróf eða iðnmenntun og háar tekjur.

Píratar sækja sitt fylgi að lang mestu til ungs fólks, það er undir fertugu. Flokkurinn er vinsælastur í Miðborginni og Vesturbænum, hjá konum, með litla menntun og lágtekjufólks.

Sjá einnig:

Fylgið á flugi í nýrri könnun í borginni – Einn flokkur í lykilstöðu

Framsóknarflokkurinn, sem var sigurvegari síðustu kosninga en sér fram á stórtap samkvæmt könnuninni, höfðar einkum til kvenna, ungs fólks, með framhaldsskólapróf eða iðnmenntun, tekjur á bilinu 1,2 til 1,6 milljón króna og búsettra austan Elliðaáa.

Flokkur fólksins, sem er minnsti flokkurinn sem mælist með mann inni í borgarstjórn, sækir fylgi sitt einkum til fólks austan Elliðaáa, til kvenna, eldri borgara og með litla menntun.

Hér fyrir neðan má sjá skiptinguna:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn