fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Fangi ósáttur við að mega ekki fá kærustuna sína í heimsókn

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. mars 2026 09:00

Fangelsismálastofnun rekur fangelsi landsins. Mynd: Skjáskot/Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fangi í ónefndu fangelsi hérlendis kvartaði til umboðsmanns Alþingis yfir því að honum hafi verið meinað að fá kærustuna sína í heimsókn. Bendir umboðsmaður fanganum á að hann verði fyrst að kvarta til dómsmálaráðuneytisins.

Kvörtunin var lögð fram í síðasta mánuði en samkvæmt henni synjaði Fangelsismálastofnun beiðni fangans um heimsóknarleyfi fyrir kærustuna. Ræddi starfsmaður umboðsmanns í kjölfarið við fangann í síma. Sagði fanginn í símtalinu að hann hefði ekki kært synjunina til dómsmálaráðuneytisins.

Í bréfi umboðsmanns til fangans segir að um heimsóknir til fanga sé fjallað í lögum um fullnustu refsinga. Þar segi meðal annars að fangi sem afplánar í lokuðu fangelsi geti fengið heimsóknir frá fjölskyldu og vinum ef aðstæður í fangelsi leyfi og slíkt teljist gagnlegt sem þáttur í refsifullnustu hans. Það sama eigi við um fanga sem afpláni í opnu fangelsi.

Forstöðumaður viðkomandi fangelsis geti ákveðið að banna tilteknum mönnum að heimsækja fanga ef nauðsynlegt þyki til að viðhalda ró, góðri reglu og öryggi í fangelsi og til að koma í veg fyrir refsiverðan verknað eða ef ástæða sé til að ætla að heimsóknin verði misnotuð að öðru leyti. Slíka ákvörðun skuli rökstyðja skriflega. Ákvarðanir um takmarkanir á heimsóknum séu samkvæmt lögunum kæranlegar til dómsmálaráðuneytisins.

Kæra

Í bréfi umboðsmanns til fangans er þess ekki getið hvaða rökstuðning hann fékk fyrir því að vera meinað að fá kærustuna í heimsókn. Það kemur heldur ekki fram hvort það hafi verið Fangelsismálastofnun eins og fanginn segir eða forstöðumaður fangelsisins sem bannaði heimsóknina eins og kveðið er á um í lögunum og raunar er tekið fram á heimasíðu stofnunarinnar að það sé forstöðumaður sem geti bannað heimsóknir tiltekinna aðila. Líklega breytir þessi munur á orðalagi ekki miklu enda rekur stofnunin öll fjögur fangelsi landsins og forstöðumenn því starfsmenn stofnunarinnar.

Í bréfi umboðsmanns Alþingis til fangans segir að tilgangurinn með því að vitna í áðurnefnd lagaákvæði sé sá að ekki sé unnt að kvarta til umboðsmanns fyrr en æðra stjórnvald, sem í þessu tilviki sé dómsmálaráðuneytið, hefur lokið meðferð sinni á málinu. Sé þannig gert ráð fyrir að stjórnvöld fái tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum sem hugsanlega sé ekki í samræmi við lög áður en leitað sé til umboðsmanns. Í samræmi við þetta sé ekki hægt að taka kvörtunina til frekari athugunar að svo stöddu. Kjósi fanginn að bera málið undir dómsmálaráðuneytið getur hann leitað til umboðsmanns á ný þegar niðurstaða ráðuneytisins liggur fyrir, sé hann ósáttur við hana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar