

Sextugur breskur ferðamaður á yfir höfði sér tveggja ára fangelsi eftir að hafa tekið myndbönd af loftárásum íranska hersins á Dubai og dreifa myndböndunum á samfélagsmiðla. Sá breski, sem er einn af tuttugu einstaklingum sem á yfir höfði sér slíka refsingu, eyddi myndböndunum um leið og hann áttaði sig á því að þau gætu komið honum í vandræði. Hann hefur beðist vægðar og fullyrt að það hafi ekki verið ætlun hans að brjóta lög en engu að síður var hann ákærður fyrir brot sín.
Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa tekið hart á því að myndskeiðum sé dreift af árásunum. Vísa þau í lög þar sem fram kemur að bannað sé að dreifa orðrómi eða áróðri sem geti grafið undan öryggi almennings. Í stað myndbanda á síðum hinna ákærðu, þar sem sjá mátti sprengjum rigna yfir ákveðna hluta Dubai, hafa nú birst myndbönd þar sem Dubai er lofað í hástert og ekki orði minnst á átökin.
Þessi harka yfirvalda er rakin til þess að efnahagslíf furstadæmisins treystir að miklu leyti á efnaða erlenda ríkisborgara sem hafa flutt búferlum í eyðimörkina og njóta þar lágra skatta og lúxuslífs. Óttast yfirvöld að árásir Írana muni gera það að verkum fjölmargir muni flýja furstadæmið og því er allt gert til þess að halda ímyndinni góðri.