fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Harðri flokkunarkeppni lokið hjá Krónunni – Borgartún með 93,3%

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. mars 2026 12:57

Starfsfólk Krónunnar í Borgartúni með verðlaunagripinn. Um er að ræða farandsbikar eftir Stúdíó Fléttu sem er endurnýttur úr eldri verðlaunagripum. Að auki hlýtur starfsfólkið veislu til að fagna árangrinum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfsfólk í verslunum Krónunnar hefur undanfarið keppst um titilinn Flokkari ársins. Keppnin hefur verið haldin þrjú ár í röð og hefur þróast í nokkurs konar innanhúss „bikarkeppni” þar sem verslanir reyna að ná sem hæstu flokkunarhlutfalli.

Í myndbandi Krónunnar sést meðal annars þegar sigurvegarinn fyrir árið 2025 er krýndur. Verslun Krónunnar í Borgartúni bar sigur úr býtum með flokkunarhlutfall upp á 93,3%, sem þýðir að almennt sorp var aðeins 6,7%.

Karolina Polak, verslunarstjóri í Borgartúni, tók við verðlaunagripnum frá Guðmundi Jónssyni, verslunarstjóra á Hvolsvelli sem vann keppnina árið áður.

Veitt voru verðlaun í þremur flokkum auk viðurkenningar fyrir hástökkvara ársins. Auk Borgartúns sigruðu Hvolsvöllur og Selfoss í sínum stærðarflokki, en Hamraborgin var hástökkvari ársins með 14% bætingu.

Myndbandið fangar vel stemninguna og keppnisskapið í kringum keppnina og sýnir hvernig flokkun hefur orðið hluti af daglegu starfi verslananna og menningu Krónunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta eru vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi

Þetta eru vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi
Fréttir
Í gær

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur
Fréttir
Í gær

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður
Fréttir
Í gær

Nauðgunarmálið á Akureyri: Mennirnir látnir lausir

Nauðgunarmálið á Akureyri: Mennirnir látnir lausir