fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Safnað fyrir konurnar sem brutust inn í hvalveiðiskipin til að mótmæla

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 16:30

Phillips og Babaei voru dæmdar til sektargreiðslu í héraði í gær. Mynd/Gofundme

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjársöfnun er í gangi á síðunni Gofundme fyrir hvalverndunarsinnanna Elissu Phillips og Anahitu Sahar Babaei. Þær voru nýlega dæmdar fyrir húsbrot þegar þær mótmæltu um borð í tveimur hvalveiðiskipum í september mánuði árið 2023.

Um 11.700 pund hafa safnast nú þegar, sem gera um 13 milljónir króna. En takmarkið er 30 þúsund pund, það er rúmlega 34 milljónir. Féð á að nota til þess að greiða fyrir allan lögfræðikostnað og annað sem fellur til við vörnina sem og að halda baráttunni áfram að fá hvalveiðar bannaðar á Íslandi.

„Við vorum handteknar á Íslandi eftir friðsamleg mótmæli vegna slátrunar hvalategundar í hættu. Við klifruðum upp í mastrið á tveimur hvalveiðiskipum og seinkuðum veiðunum um 33 klukkutíma og vöktum alþjóðlega athygli á máli sem má ekki hundsa,“ segja konurnar í færslu með söfnuninni. „Þetta var friðsamleg borgaraleg óhlýðni. Nú stöndum við frammi fyrir lagalegum afleiðingum þess að gera það sem er rétt.“

Sjá einnig:

Láta af mótmælunum í hvalveiðiskipunum:„Afsakið, við getum ekki meira“

Phillips og Babaei voru sakfelldar í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir húsbrot. Sagt var í dómnum að þær hefðu torveldaða eiganda skipanna Hvals 8 og 9 að hagnýta eigur sínar. Enginn vafi hafi leikið á því að þær hafi óhlýðnast lögreglunni. Var þeim gert að greiða sekt upp á 200 þúsund krónur hvor sem og málsvarnarlaun verjenda sinna.

Söfnunina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”