fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Fréttir

Lögregla hafði afskipti af „trylltum“ manni

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 07:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt, en alls voru 54 mál skráð á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun.

Lögreglumenn á lögreglustöð 1 höfðu meðal annars afskipti af „trylltum“ manni sem fjarlægður var úr húsnæði félagasamtaka og þá voru höfð afskipti af „víðáttuölvuðum útlendingi“ sem gat ekki sannað á sér deili, hvað þá sýslað með eigin hagsmuni sökum ástands. Var hann vistaður í fangaklefa. Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki og er málið í rannsókn.

Í umdæmi lögreglustöðvar 2 var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun og var málið afgreitt á vettvangi. Í sama umdæmi var manni í annarlegu ástandi vísað úr ruslageymslu og komið í skjól.

Í umdæmi lögreglustöðvar 3 var maður kærður fyrir að aka á 90 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar. Var hann færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða eftir að hafa ekið á þreföldum hámarkshraða. Í sama umdæmi var tilkynnt um líkamsárás og er málið í rannsókn.

Þrír voru svo sendir á slysadeild í umdæmi lögreglustöðvar 4 eftir að bifreið var ekið í gegnum grindverk. Frekari upplýsingar um slysið koma ekki fram í skeyti lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gátu ekki sannað að hvalaskoðunarferðirnar væru umhverfisvænar

Gátu ekki sannað að hvalaskoðunarferðirnar væru umhverfisvænar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómurinn yfir Steinu Árnadóttur stendur – Sakfelld fyrir manndráp af gáleysi en ekki gerð refsing

Dómurinn yfir Steinu Árnadóttur stendur – Sakfelld fyrir manndráp af gáleysi en ekki gerð refsing