
Ónefndur eintsaklingur hafði ekki erindi sem erfiði vegna kvörtunar sem viðkomandi lagði fram til umboðsmanns Alþingis en kvartandinn hafði lagt bíl sínum í bílastæði sem er sérstaklega ætlað fötluðum og öðrum með stæðiskort fyrir hreyfihamlaða. Sagðist kærandinn hafa verið tilneyddur til að leggja í stæðið þar sem hann hefði verið að flytja hluti inn í íbúð en takmarkað aðgengi hafi verið að viðkomandi húsi. Umboðsmaður taldi hins vegar álagningu sektarinnar vera fyllilega í samræmi við lög.
Kvartandinn lagði sína kvörtun fram í desember síðastliðnum. Fram kom í kvörtuninni að Bílastæðasjóður Reykjavíkur hefði lagt sektina á vegna brots á ákvæðum umferðarlaga sem mæla fyrir um bann við því að aðrir en þeir sem hafa undir höndum stæðiskort fyrir hreyfihamlaða stöðvi eða leggi ökutæki á merktu stæði fyrir ökutæki fatlaðs fólk. Sagði kvartandinn ástæðu þess að bifreiðinni var lagt í stæðið að hann hafi verið að flytja muni inn í nærliggjandi íbúð, en takmarkað aðgengi hafi að öðru leyti verið til að athafna sig við húsið. Með tölvupósti fyrr í þessum mánuði sendi kvartandinn síðan umboðsmanni myndir af aðstæðum við húsið.
Segir í bréfi umboðsmanns til kvartandans að hann hafi ekki andmælt því að bifreiðinni hafi verið lagt í stæðið þrátt fyrir að hann sé ekki með stæðiskort fyrir hreyfihamlaða. Í ljósi þessa og einnig þess að í umferðarlögum sé með skýrum hætti mælt fyrir um að eingöngu handhafa stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða sé heimilt að leggja í bifreiðastæði sem ætlað sé fyrir fatlaða, telur umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemdir við þá afstöðu Bílastæðasjóðs að bifreiðinni hafi verið lagt í andstöðu við áðurnefnd ákvæði umferðarlaga.
Kvartandinn hafði því ekki erindi sem erfiði.