fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hraunað yfir Stefán Einar vegna ummæla hans um Nönnu – „Þetta er viðurstyggð“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 12. janúar 2026 13:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson hafi gert allt brjálað vegna ummæla sem hann lét falla um rithöfundinn Nönnu Rögnvaldardóttur í nýlegum þætti Þjóðmála.

Þar var Stefán Einar mættur ásamt Herði Ægissyni og stjórnandanum Gísla Frey Valdórssyni.

Hjálmtýr Heiðdal birti brot úr þættinum þar sem Stefán Einar, með sólgleraugu á nefinu, fer óskemmtilegum orðum um Nönnu þegar félagarnir ræða sín á milli um matargerð.

Nanna hefur skrifað fjölda bóka um matargerð og matarsögu, þar á meðal Matarást sem er einskonar alfræðibók um matargerð.

Í brotinu sem Hjálmtýr birtir segir Stefán Einar:

„Mér fannst nú Nanna Rögnvaldar ekki smekkleg kona, en svo virðist hún hafa farið á Ozempic og hún er bara orðin eins og færeyskt skerpukjöt. Hver vill borða mat frá svona konu? Mynduð þið kaupa matreiðslubækur frá henni. Ég bara missi matarlystina við tilhugsunina.“

Fyrrverandi ráðherra misboðið

Fjölmargir leggja orð í belg við færslu Hjálmtýs og virðist fólki vera verulega misboðið.

„Þetta er viðurstyggð. Nanna hefur samið bækur um mat sem eru gjörsamlega á heimsmælikvarða. Grundvallarrit. Svo gapa þeir upp í hann þarna tveir,“ segir til dæmis Egill Helgason fjölmiðlamaður.

„Þessir menn eru eins ógeðfelldir og verður. Stefán ræfillinn er utan alls velsæmis. Takið eftir auglýsendunum,“ segir svo Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri, og merkir fyrirtækin Gullfiskur og Kjötkompaní í færslu sinni.

Meira að segja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi þingkonu og ráðherra, er misboðið.

„Hvílík lágkúra og hvaðan kemur honum sú hugmynd að hann geti talað svona um konur á opinberum vettvangi? Oj bara,“ segir hún.

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og fjölmiðlamaður, segir:

„Svona menn hafa verið taldir hálfvitar í öllum deildum jarðar á öllum tímum, frá steinöld til okkar daga. Það sýnir siðmenningarlegt hrun okkar tíma að slíkum bjánum sé hampað. Kannski er þetta siðmenningarlega hrunið sem Trump varaði við og vildi kenna útlendingum um.“

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona, segir í sinni athugasemd:

„Fasismi og mannfyrirlitning ganga yfirleitt hönd í hönd. Ekkert sem kemur á óvart þarna. Og þó, það kemur svolítið á óvart hversu margir láta sér vel líka í þessum félagsskap.“

„Viðurstyggð,“ segir síðan bókaútgefandinn Jóhann Páll Valdimarsson.

Myndbandið og umræðurnar má sjá hér að neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“