Fréttir

Síbrotamaður í vanda eftir mislukkað erindi á veitingastað í Reykjavík

Mynd
Miðborg Reykjavíkur. Myndin er úr safni.

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að manni sem var á reynslulausn verði gert að fara aftur í fangelsi til að sitja af sér eftirstöðvar refsingarinnar. Hafði maðurinn hlotið þrjá mismunandi dóma en var að afplána þá alla samhliða. Maðurinn er sterklega grunaður um innbrot í fyrirtæki þar sem meðal annars 16 fartölvum var stolið. Reyndi maðurinn að selja starfmanni veitingastaðar eina tölvuna en fullyrti við lögreglu að hann hefði ætlað að gefa viðkomandi, sem hann þekkti ekki neitt, tölvuna þar sem honum hefði þótt það fyndið. Maðurinn er einnig grunaður um vopnað rán á almannafæri, auk fleiri brota. Þess er ekki getið um hvaða fyrirtæki og veitingastað er að ræða en þar sem málið fór fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur er ekki ólíklegt að annað þeirra eða bæði séu staðsett í Reykjavík.

Eftirstöðvar refsingarinnar sem manninum er nú gert að afplána eru 280 dagar. Um er að ræða eftirstöðvar fangelsisdóma sem hann hlaut árin 2022, 2023 og 2024. Manninum var veitt reynslulausn á Þorláksmessu 2024 sem átti að gilda í tvö ár, héldi hann almennt skilorð.

Sterkur grunur leikur hins vegar á að maðurinn hafi á meðan reynslulausninni stóð gerst sekur um brot sem varðað geta allt að 10 ára fangelsi.

Tölvur

Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur segir að þann 16. september síðastliðinn hafi lögreglu borist tilkynning um innbrot í fyrirtæki þar sem stolið hafi verið 16 Macbook Pro fartölvum, tveimur Bose hátölurum, Bose heyrnartólum og Apple spjaldtölvu að andvirði 11.604.795 króna. Degi síðar hafði starfsmaður fyrirtækisins haft samband við lögreglu þar sem starfsmaður veitingastaðar hefði haft samband við hann og greint frá því að aðili, sem væri bannaður á veitingastaðnum, hefði reynt að selja honum Macbook fartölvu. 

Starfsmaður veitingastaðarins hafi tekið fartölvuna af aðilanum og afhent lögreglu, sem síðar hafi komið henni í hendur starfsmanns fyrirtækisins þar sem brotist var inn. Starfsmaður veitingastaðarins hafi sagt manninn, sem málið snýst um, vera þann aðila sem reyndi að selja honum fartölvuna. Í skýrslutöku hafi maðurinn játað að vera þessi aðili en hefði sagst hafa ætlað að gefa starfsmanni veitingastaðarins fartölvuna, þrátt fyrir að þekkja engin deili á honum, „þar sem honum þótti það fyndið“. 

Segir enn fremur að við skoðun á myndefni úr eftirlitsmyndavélum fyrirtækisins, þar sem brotist var inn, yrði ráðið að klæðnaður þess aðila væri samskonar þeim fatnaði sem maðurinn klæddist þegar hann kom með fartölvu á veitingastaðinn sem og við handtöku hans. Maðurinn hafi enn fremur þekkt sjálfan sig á myndum úr eftirlitsmyndavélum veitingastaðarins.

Fram kemur einnig að maðurinn eigi samtals 8 ólokin mál í kerfi lögreglu frá 4. ágúst 2025 til 18. september 2026.

Síbrot

Embætti lögreglustjórans á höfuborgarsvæðinu taldi ljóst að maðurinn hefði brotið gróflega gegn skilyrðum reynslulausnarinnar og því væru skilyrði laga fyrir því að honum yrði gert að afplána eftirstöðvar refsingarinnar uppfyllt.

Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að dómarnir þrír sem maðurinn var að afplána væru í fyrsta lagi frá 2022 en þá hlaut hann 15 mánaða fangelsisdóm fyrir frelsissviptingu og rán.

Í öðru lagi frá 2023 en þá var maðurinn dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir umferðar-, lögreglu- og
fíkniefnalagabrot.

Í þriðja lagi frá 2024 en þá var um að ræða átta mánaða fangelsi fyrir rán, húsbrot, nytjastuld, umferðarlagabrot og vopnalagabrot.

Í niðurstöðu héraðdóms um kröfuna um að manninum yrði gert að afplána eftirstöðvar þessara þriggja dóma er minnt á að hann sé til rannsóknar, með réttarstöðu sakbornings í átta mismunandi málum. Þar er innbrotsins, þar sem tölvunum var stolið, sérstaklega getið og tekið fram að sönnunarstaða í því máli sé sterk.

Einnig minnist héraðsdómur sérstaklega á mál sem varðar rán í undirgögnum í Reykjavík 28. febrúar 2026. Veist hafi verið að manni með hnífi og hafðar af honum 5.000 krónur. Við skýrslutöku hjá lögreglu hafi hinn grunaði játað að hafa verið að
verki en neitað því að hafa haft vopn meðferðis. Að því virtu sé sönnunarstaðan sterk í málinu.

Héraðsdómur féllst á það með lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að maðurinn væri undir sterkum grun um að hafa gerst sekur með grófum hætti um brot gegn
244. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga sem varðað geti hann fangelsisvist allt að 10 árum. Maðurinn hafi rofið almennt skilyrði reynslulausnarinnar. Samfella væri í meintum brotum hans sem væru öll fremur nýleg. Nauðsynlegt væri að grípa inn í og stöðva frekari brot. Þá væri afar ólíklegt út frá sakaferli og skilorðsrofi að refsing vegna þessara brota yrði
ákveðin skilorðsbundin, kæmi til sakfellingar á síðari stigum.

Landsréttur tekur undir þetta og staðfestir úrskurð héraðsdóms. Maðurinn þarf því að afplána það sem eftir stóð af fangelsisdómunum þremur frá 2022-2024 en hvort og þá hversu þunga dóma hann mun hljóta fyrir þau brot sem hann er grunaður um að hafa framið, á meðan reynslulausninni stóð, á eftir að koma í ljós.