Hamish Falconer, ráðherra Evrópumála í bresku ríkisstjórninni, vill ekki útiloka að breska ríkisstjórnin setji inngöngu Evrópusambandsins á dagskrá fyrir næsta þing. Stjórnmálaskýrendur í Bretlandi telja að orð Falconer gefi til kynna að Andy Burnham forsætisráðherra ætli að færa landið nær Evrópusambandinu á næstunni.
Kinnock segir aðildarviðræður það eina í stöðunni
Tilefni ummæla Falconer er nýlegt viðtal Independent við Neil Kinnock, sem leiddi Verkamannaflokkinn á níunda áratugnum, sagði að fara aftur í Evrópusambandið væri það besta fyrir þjóðina. Hvatti Kinnock Burnham að fara gegn skýrum línum fyrirrennara síns og hefja aftur á ný viðræður.
„Ef þú elskar landið þitt, elskar fólkið sem býr hérna, þá viltu koma okkur aftur inn í Evrópusambandið,“ sagði Kinnock. Hann sagði að það væri það eina í stöðunni. „Gerðu það fyrir krakkana. Þau fengu ekkert að segja síðast.“
Falconer, sem hefur nú verið í embætti í viku, segir við Sky að það sé ekki til umræðu að ganga inn í Evrópusambandið á þessari stundu en það komi til kasta flokksins hvaða stefna verður tekin. Burnham hefur sjálfur sagt að hann vilji að Bretland gangi aftur í Evrópusambandið en það sé ekki í forgangi þar sem það myndi festa landið í stöðugum deilum.
Margt breyst frá 2016
Keir Starmer, sem lét af embætti forsætisráðherra fyrir viku, stefndi að því að „endurstilla“ tengsl Bretlands við Evrópusambandið, Falconer segir að hann vilji halda því áfram.
„Við þurfum líka að skoða hvernig við getum gengið lengra. Frá því að við byrjuðum samtalið þá hefur heimurinn breyst allsvakalega. Ógnirnar eru líka mun meiri, bæði í Austur-Evrópu en einnig þegar kemur að efnahagsmálum og upplýsingaóreiðu,“ segir Falconer.
Var hann svo spurður hvort hann væri sammála Kinnock. „Það er ekki búið að ganga frá næstu stefnuyfirlýsingu, það er alveg skýrt hvað forsætisráðherrann hefur sagt, og ég er sammála honum, það var kosið fyrir tíu árum. Þetta var vilji þjóðarinnar. Þetta var vilji míns kjördæmis líka. Við erum ekki að fara að bakka,“ segir Falconer. „Heimurinn hefur breyst frá 2016. Við þurfum að passa að samband okkar við Evrópu breytist líka. Það eru miklar áskoranir sem Evrópa og Bretland standa frammi fyrir.“
Falconer segir að það komi ekki til greina að sækja um aðild í dag. „Það sem mun koma fram í okkar stefnu verður borið undir Verkamannaflokkinn.“