Fréttir

Andrea segir Bílastæðasjóð gera í því að sekta á meðan foreldrar sækja á leikskólann

Mynd
Andrea Sigurðardóttir. Samsett mynd.

Foreldri barns á leikskóla í Bríetartúni í Reykjavík segir Bílastæðasjóð gera í því að mæta kl. 16:00 á virkum dögum og sekta foreldra sem eru að sækja börnin sín á leikskólann, vill hún að oddvitar meirihlutans ráði bót á málum.  

Andrea Sigurðardóttir segir í færslu á Facebook að leikskólinn sjálfur sé dásamlegur, það eigi við um starfið og starfsfólkið. „En það umhverfi sem hann starfar í og borgin býður foreldrum ungra barna upp á er ekki í lagi og langar mig til þess að hvetja vini mína Hildi Björnsdóttur, Björgu Magnusdóttur og Einar Þorsteinsson til dáða við það að ráða bót á málum.”

Langflestir á bíl

Dóttir Andreu og flest önnur börn á hennar deild koma úr öðrum hverfum borgarinnar, þar að auki eigi margir önnur börn í öðrum skólum. „Þannig að langflestir foreldranna eru á bíl og hafa ekki val um annað,“ segir hún. Öll bílastæðin í kring eru gjaldskyld. „Leikskólinn er staðsettur á jarðhæð í stóru fjölbýlishúsi, þar sem eru mörg fleiri fjölbýli í nágrenninu auk fyrirtækja og hótela. Foreldrar barna á leikskólanum eru því í samkeppni við íbúa fjölbýlishúsanna og starfsfólk og viðskiptavini fyrirtækjanna í nágrenninu um þau örfáu stæði sem liggja við lóð leikskólans og önnur í næsta nágrenni hans.“

Þar að auki skapast glundroði þegar margir eru að sækja börnin á sama tíma. „Hitt er aftur verra að það skapast jafnan kaos þarna í götunni þegar margir eru að sækja börn sín á sama tíma, stæðin alls staðar í kring full og foreldrar, sem eru bókstaflega að stoppa í þrjár mínútur grípa til þess ráðs að leggja (ólöglega) í pláss í kringum stæðin.“

Þeir sem gera það fái gjarnan sekt. „Bílastæðasjóður virðist gera í því að mæta um kl. 16 og sekta þessa glæpamenn um 10 þúsund krónur, sem er blóðugt. Þessir foreldrar eru ekki vandamálið, þeir leggja þarna vegna þess að það eru ekki aðrir valkostir í stöðunni. Þeir stoppa þarna allir mjög stutt og innan mjög þröngs glugga yfir daginn.“

Kvartað hafi verið árum saman, getur Andrea þó eygt þá von að nýr meirihluti geri eitthvað í málinu þar sem til stendur að endurskoða gjaldskyldutíma bílastæða í borginni.

„Rót vandans er að það er ekki nóg af stæðum, engin stæði sérmerkt foreldrum á þessum tíma sem fólk er að skutla og sækja, eða nokkuð annað gert til að laga ástandið af hálfu borgarinnar, sem þó hefur verið kvartað yfir árum saman.“

Þarf sekúndubrot

Varðandi hvort það sé ekki hægt að leggja lengra í burtu og labba í leikskólann til að sækja segir Andrea það ekki vera svo einfalt. 

„Vegna þess að ofan á bílastæðavandann þá er í mínum huga bara tímaspursmál hvenær það verður alvarlegt umferðarslys í Bríetartúninu,“ segir Andrea. Gatan er með 30 kílómetra hámarkshraða en það sé ekkert merki við leikskólann og þar æði bílar áfram á ofsahraða. Við það bætast rútur að sækja ferðamenn á nærliggjandi hótel. „Að þær leyfi sér að keyra svona hratt fram hjá ungbarnaleikskóla er mér óskiljanlegt.“

Elstu börnin eigi það til að rífa sig frá foreldrum og hlaupa í burtu á sama tíma og þau hafi engan skilning á umferðarhættunni.

„Það þarf svo lítið til að eitthvert barnanna hlaupi út á götu milli bílanna, það þarf sekúndubrot, og einn ökumann sem ekur ekki miðað við aðstæður til að eitthvað hræðilegt gerist. Þetta er minn mesti kvíði á hverjum virkum degi að eitthvað svona komi fyrir.“

Andrea sá eitt sinn móður vera með nýfætt barn í bílstól að sækja annað lítið barn á leikskólann. „Hún komst ekki yfir götuna með þau bæði og allt dótið sem þeim fylgdi. Þegar ég kom að var hún að gera upp með sér hvort hún ætti að skilja annað barnið eftir öðrum megin götunnar á meðan hún færi með hitt yfir, á sama tíma og bílar æddu fram hjá á miklum hraða. Ég aðstoðaði hana en þetta eru oft aðstæður sem foreldrar finna sig í vegna stæðaskorts og hraðaaksturs.“