Fréttir

Efasemdir um sparnaðarstefnu Hildar: „Nóg er komið af gámum og gráum kössum!“

Mynd
Egill Helgason, Una Margrét Jónsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Stefán Pálsson og Björn Leví Gunnarsson. Samsett mynd.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að nýr meirihluti í borginni ætli að einfalda byggingu grunn- og leikskóla, nýta teikningar sem eru til og fara í meira samstarf við einkaaðila um uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði. Ekki eru ekki sammála þessari nálgun Hildar og telja að þörf sé á meiri metnaði þegar kemur að skólahúsnæði. 

Hildur ræddi um húsnæði leikskóla í Bítinu á Bylgjunni í gær þar sem hún sagði að fallið yrði frá byggingu á nýjum skóla í Vogahverfi þar sem framkvæmdin sé of dýr. Borgin eigi til teikningar af fallegum leikskólum og það þurfi ekki að fara í samkeppnir arkitekta. Vísaði hún til leikskólans Brákarborgar sem kemur til með að kosta borgina fjóra milljarða króna. 

„Við hefðum getað byggt að minnsta kosti fjóra fína leikskóla fyrir þennan pening,“ sagði Hildur og bætti við að skólinn fyrir Vogahverfið eigi að kosta tuttugu milljarða.

Ekki góð stefna að öllu leyti

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason er ekki viss um að þetta sé að öllu leyti góð stefna. 

„Ég er ekki viss um að þetta sé að öllu leyti góð stefna. Þegar Reykvíkingar voru mun fátækari en nú byggðu þeir glæsilega skóla eins og Austurbæjarskóla, Melaskóla og Laugarnesskóla,“ segir hann í færslu á Facebook. „Nú lifum við á tíma hagræðingar, íbúðarhús eru eins og gráir kassar, verslanir eru í stálgrindaskemmum og skólar eru settir í einhvers konar gámahús. Við eigum að geta leyft okkur meiri metnað í byggingarlist og skipulagi.“

Margir taka undir með Agli, þar á meðal rithöfundurinn Una Margrét Jónsdóttir

„Það er mjög mikilvægt að fegurðarsjónarmið gleymist ekki þegar skólar eru teiknaðir. Nóg er komið af gámum og gráum kössum!,“ segir hún. 

Þingmaðurinn fyrrverandi Björn Leví Gunnarsson bætti við: „Ég hef oft pælt í því, þegar ég kem inn í skrautlegustu mannvirkin sem við byggjum (kirkjur) - hvernig við værum sem samfélag ef við settum sama metnað í uppbyggingu mennta- og heilbrigðisbygginga,“ segir Björn Leví. 

Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson vísar á Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. „Eini framhaldsskólinn sem byggður var á árunum beint eftir hrun var Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. Hann er fallegt og vandað mannvirki, sem maður skynjar að er góður vinnustaður um leið og komið er inn í bygginguna. En líklega hefði verið hægt að finna ódýrari kubbaeiningu einhvers staðar.“

Bogadreginn skóli ofan á síki

Mynd
Upphaflega hugmyndin var að reisa grunnskóla, leikskóla og íþróttamiðstöð inn í göngu- og hjólabrú yfir Elliðaárvog. Hildur segir þetta hafa átt að kosta tuttugu milljarða, áformin hafa verið slegin út af borðinu. Mynd/OMNO ehf.

Sjálfstæðismaðurinn Bergur Þorri Benjamínsson segir áformin of dýr. „Þetta eru einfaldlega of dýr áform. Borgadreginn skóli ofan á síki. Segir allt sem segja þarf.“

Fjölmiðlamaðurinn Óðinn Jónsson segir að það hljóti að vera einhver millivegur fær.

„Valið stendur varla á milli þess að reisa 20 milljarða sérhannað skólahús á brú yfir strandvog eða ódýran gráan kassa. Það bráðvantar skólahúsnæði en um leið tekst illa að viðhalda því sem fyrir er - af því að ekki er sett nægileg athygli og nógu mikið fé í málaflokkinn.“