Fréttir

Sýknaður af öllum ákærum um ofbeldi gegn barnsmóður sinni - Horft til þess að hún svaraði fyrir sig

Mynd

Landsréttur hefur sýknað karlmann af öllum ákæruliðum, sem eftir stóðu, fyrir meint ofbeldi gegn barnsmóður hans og fyrrum sambýliskonu. Maðurinn hafði áður verið sýknaður að hluta ákæruliða fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra en sakfelldur fyrir aðra og tók Landsréttur aðeins fyrir þá ákæruliði. Meðal þess sem Landsréttur vísar til í rökstuðningi fyrir því að sýkna manninn alfarið er að konan hafi viðurkennt að hafa stundum svarað fyrir sig þegar maðurinn hafi að hennar sögn ráðist á  hana.

Maðurinn var upphaflega ákærður í átta liðum fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra en var sýknaður af fimm liðum og einum að hluta til. 

Samkvæmt þeim ákæruliðum sem maðurinn var sýknaður af hrinti hann konunni á skógrind um jólin 2021, beitti hana ofbeldi á ferðalagi þeirra erlendis meðal annars með því að ýta kodda og sæng að andliti hennar auk þess að ýta henni naktri inn í skáp og taka hana hálstaki og þrýsta upp undir kjálkann á henni á meðan börn þeirra voru við leik á neðri hæð hússins. Einnig var hann sýknaður af ákæru fyrir að hafa þrýst á munn konunnar og skemmt þannig tanninnplant sem sett hafði verið í munn hennar.

Loks var hann sýknaður af ákæru um að hafa slegið hana í andlitið á meðan þau héldu á sitt hvoru barninu.

Sakfelldur

Maðurinn var síðan sakfelldur en sýknaður þó að hluta fyrir sjötta ákærulið sem kvað á um að hann hefði ítrekað á tímabilinu sem þau bjuggu saman tekið utan um andlit konunnar með annarri hendi og kreist saman á henni kinnarnar, þótt börnin væru á staðnum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi manninn að öðru leyti af tveimur ákæruliðum. Samkvæmt þeim fyrri réðst hann í nóvember 2022, á þáverandi heimili þeirra, að konunni þar sem þau voru í þvottahúsi íbúðarhússins og tók hana hálstaki með báðum höndum og lyfti henni upp og kastaði henni eða ýtti á þvottagrind þannig að hún datt í gólfið. Afleiðingarnar hafi orðið þær að hún var með roða á hálsi vinstra megin og lýsti særindum við að kyngja. Daginn eftir hafi hún lýst verkum við hnakkafestur, háls og herðar, auk óþæginda við að kyngja.

Héraðsdómur sakfelldi manninn einnig fyrir að hóta konunni ítrekað lífláti þegar hún gekk með barn þeirra og að hafa gert það í viðurvist barnanna sem þau eignuðuðst í fyrri samböndum.

Sýkna

Maðurinn áfrýjaði dómnum til Landsréttar en ákæruvaldið ákvað að una dómnum og því tók rétturinn aðeins fyrir þá ákæruliði sem maðurinn var sakfelldur fyrir.

Í niðurstöðu Landsréttar um hina meintu árás í þvottahúsinu segir að maðurinn segi að í umrætt sinn hafi konan vakið hann með skítkasti í hans garð. Þau hafi þá farið að rífast og hann elt hana niður í þvottahús. Hann hafi eitthvað ýtt í hana og hún þá hrasað um þvottagrind og dottið í gólfið. Maðurinn hafi alfarið neitað að hafa tekið konuna hálstaki og lyft henni upp en hún stóð fast við að það hefði hann gert

Konan leitaði til læknis í kjölfarið en Landsréttur segir að samkvæmt vottorðinu hafi einu sjáanlegu áverkarnir á henni verið roði á hálsinum. Vottorðið renni því ekki stoðum undir framburð konunnar um þessa meintu grófu atlögu mannsins að henni. 

Myndir sem móðir konunnar hafi tekið í kjölfarið hafi heldur ekkert sönnunargildi þar sem þar sjáist ekkert umfram það sem komi fram í vottorðinu. 

Framburður konunnar einn og sér dugi ekki til að sakfella manninn fyrir þetta.

Órannsakað

Maðurinn var einnig eins og áður segir sakfelldur að hluta fyrir sjötta ákærulið sem kvað á um að hann hefði ítrekað kreist kinnarnar á konunni saman og einnig var hann sakfelldur fyrir að hafa ítrekað hótað henni lífláti á meðan hún gekk með barn þeirra. 

Landsréttur segir þessi atriði ekki hafa verið rannsökuð nægilega vel af lögreglu. Þetta sé aðeins byggt á framburði konunnar og móður hennar en um þá segir Landsréttur:

„Við mat á sönnunargildi framburðar brotaþola verður til þess að líta að af framburðinum í heild má ráða að á ýmsu gekk í sambandi hennar og ákærða. Þannig bar brotaþoli fyrir dómi að hún hefði slegið ákærða „oft á móti“. Þá kvaðst hún nánar spurð hafa „slegið [ákærða] og ýtt honum frá [sér] og sparkað honum ofan af [sér].“ Er þessi framburður brotaþola í samræmi við skilaboð sem hún sendi ákærða og liggja frammi í málinu.
Við mat á framburði brotaþola og einnig framburði móður he nar verður heldur ekki framhjá því horft að frásagnir þeirra af atvikum samkvæmt sjötta lið ákæru komu fyrst fram hjá lögreglu eftir að sambúð brotaþola og ákærða lauk.“

Rétturinn telur einnig að við mat á framburði móðurinnar verði að horfa til þessa nána skyldleika hennar og hins meinta þolanda.

Þessir framburðir dugi því ekki, gegn eindreginni neitun mannsins, til að sakfella hann fyrir þessa tvo ákæruliði.

Maðurinn var því sýknaður af öllum þeim ákæruliðum sem eftir stóðu fyrir Landsrétti.

Dóma Landsréttar og Héraðsdóms Norðurlands eystra í málinu er hægt að nálgast í heild sinni hér.