

Megn lykt af kjúklingaskít veldur íbúum í austurhluta Akraness verulegu óþægindum. Einn íbúi gagnrýnir starfsleyfi sem heimili þetta.
Skagafréttir fjölluðu fyrst um málið og á vefnum er vitnað í umræðu á samfélagsmiðlum. Það er á síðu Jóhannesar H. Smárasonar sem gagnrýnir þetta harðlega.
„Það er skítalykt af þessu máli, bókstaflega!“ segir Jóhannes sem beinir orðum sínum að framboðum til sveitarstjórnarkosninga, sem nálgast óðfluga. „Á Akranesi árið 2026 ætti það ekki að vera þannig að íbúar í heilu hverfi, og jafn vel víðar í bænum geti ekki opnað glugga heima hjá sér vegna lyktarmengunar sem leggst yfir bæinn. En það er staðan í dag, sérstaklega hérna í Jörundarholti við bæjarmörkin. Þetta er ekki einstakt atvik heldur viðvarandi ástand!“
Í fréttinni segir að ástandið sé verst austast í bænum, það er í námunda við golfvallarsvæðið. En kjúklingabúið er staðsett á mörkum Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Greint er þó frá því að lyktin hafi sennilega ekki farið fram hjá neinum íbúa á Akranesi, sama hvar þeir eru búsettir í bænum. Í ákveðinni vindátt dreifist lyktin langt inn í bæinn.
Í færslu sinni segir Jóhannes að málið snúist ekki um hvort landbúnaður eigi rétt á sér, það geri hann svo sannarlega. Málið snúist um hvort að stjórnsýslan sé að standa sig og að tryggja að starfsemi sem þessi trufli ekki íbúa sem búa nálægt.
„Hver ber ábyrgð þegar íbúar þurfa að loka sig inni á heimilum sínum?“ spyr Jóhannes framboðin til sveitarstjórna. „Að geta opnað glugga heima hjá sér ætti ekki að vera lúxus eða háð vindátt.“

Einnig spyr hann hvernig það geti verið ásættanlegt að lyktarmengun nái yfir stóran hluta bæjarins og hvað framboðin ætli að gera í málinu, ef nokkuð. Kannski telji þau þetta bara hinn eðlilegasta hlut?
„Þetta er ekki flókið mál. Ef starfsleyfi leyfa þetta, þá eru þau gölluð. Ef eftirlit á að koma í veg fyrir þetta, þá er það ekki að virka,“ segir hann. „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur.“
Næsta sveitarstjórn fái málið beint í fangið og það sé þörf á lausnum, ekki lykt.