fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Áætlað að verja 800 milljónum í að halda upp á afmæli Alþingis

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsætisnefnd Alþingis hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar en fyrsti flutningsmaður er þingforsetinn, Þórunn Sveinbjarnardóttir. Í tillögunni er lagt til hvernig minnast eigi 1100 ára afmælis Alþingis en áætlaður heildarkostnaður við það er um 802 milljónir króna.

Samkvæmt þingsályktunartillögunni  yrði forsætisnefnd falið að skipa fimm manna framkvæmdanefnd, og jafn marga menn til vara sem undirbúi hátíðahöld í samræmi við ályktunina. Nefndarmenn skuli hafa reynslu af og þekkingu á fræðslu og miðlun, rannsóknum, sagnfræði og hlutverki og starfsemi Alþingis. Forsætisnefnd ráði framkvæmdastjóra í samráði við framkvæmdanefndina og nefndin ásamt framkvæmdastjóra hafi starfsaðstöðu á skrifstofu Alþingis.

Framkvæmdanefndinni yrði falið að afla hugmynda um hvernig tímamótanna verði minnst af hálfu Alþingis og vinna úr þeim. Nefndin skuli velja hugmyndir og verkefni þar sem lögð verði áhersla á lýðræðið, þátttöku almennings og fræðslu og miðlun um sögu þings og þjóðar. Nefndin skuli virkja sem flesta til þátttöku í að minnast tímamótanna og senda tillögur sínar til forsætisnefndar Alþingis til samþykktar.

Loks yrði forsætisnefndinni, samkvæmt þingsályktunatillögunni, falið að undirbúa tillögur um fjárframlög til verkefnisins  á árunum 2027–2030.

Í greinargerðinni með þingsálytkunartillögunni segir að fyrirhugað sé að framkvæmdanefndin taki til starfa haustið 2026 en vinnan fari að mestu leyti fram árin 2029 og 2030. Fyrst um sinn muni framkvæmdanefndin njóta aðstoðar skrifstofu Alþingis. Síðar muni forsætisnefnd ráða framkvæmdastjóra í samráði við nefndina sem hefji störf árið 2029, eða fyrr ef tilefni sé til og fjárveitingar leyfi, og gera verði ráð fyrir að framkvæmdstjórinn starfi fram á fyrstu mánuði ársins 2031, þ.e. tæplega tvö ár. Skrifstofa Alþingis muni útvega framkvæmdastjóra og nefndinni starfsaðstöðu og annast fjárreiður vegna afmælisársins.

Frjáls

Segir enn fremur að í tillögunni sé gert ráð fyrir því að framkvæmdanefndin njóti nokkurs frjálsræðis við mótun hugmynda um hvernig tímamótanna verði minnst af hálfu Alþingis. Þó sé tekið fram að nefndin skuli leggja áherslu á verkefni og hugmyndir þar sem lýðræðið, þátttaka almennings og fræðsla og miðlun um sögu þings og þjóðar sé í fyrirrúmi. Framkvæmdanefndin skuli virkja sem flest til þátttöku og samstarfs, svo sem atvinnulíf, sveitarfélög og menntastofnanir. Skuli nefndin senda tillögur sínar til forsætisnefndar Alþingis til samþykktar eftir því sem verkefninu vindi fram og í samræmi við þann fyrirvara sem sé ef til vill nauðsynlegur fyrir sum þeirra.

Í desember árið 2025 hafi Alþingi boðað til hugmyndasöfnunar vegna 1100 ára afmælisins þar sem kallað hafi verið eftir tillögum til að setja á dagskrá afmælisársins. Hugmyndasöfnunin hafi verið opin öllum og hafi þinginu borist 77 tillögur. Hafi hugmyndirnar verið af ýmsum toga og lotið m.a. að fræðsluefni, varðveislu sögunnar og fræðilegum rannsóknum, viðburðum og listum, skipulagi, hönnun og mannvirkjum og loks stjórnkerfisbreytingum og lýðræðinu. Flestar hugmyndirnar hafi snúið að almenningsfræðslu eða varðveislu sögunnar. Næst á eftir hafi komið hugmyndir að listsköpun eða sýningum. Skýrsla um hugmyndasöfnun almennings í tilefni af 1100 ára afmæli Alþingis verði send framkvæmdanefnd til úrvinnslu. Slíkt girði þó ekki fyrir að nefndin kalli sjálf eftir hugmyndum að verkefnum og viðburðum í tilefni af afmælisárinu.

Líka Vigdís

Enn fremur segir að árið 2030 séu ekki eingöngu tímamót í sögu Alþingis heldur verði einnig liðin 50 ár frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands og 100 ár frá fæðingu hennar. Ef til vill verði mögulegt að flétta þau tímamót inn í hátíðahöld í tilefni af 1100 ára afmæli Alþingis.

Segir að lokum að kostnaður við greiðslu þóknunar framkvæmdanefndar, ráðningu framkvæmdastjóra og laun hans sé áætlaður 52 milljónir króna. Auk þess sé gert ráð fyrir að afmörkuð verði sérstök fjárveiting, samtals 750 milljónir króna, fyrir útgjöldum í tengslum við viðburði og verkefni í tilefni af 1100 ára afmæli Alþingis árið 2030. Framkvæmdanefnd skuli leggja fjárhagsáætlun fyrir forsætisnefnd og verði fjárþörf endurskoðuð samkvæmt henni eftir þörfum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar