

Í Silfrinu á RÚV á mánudagskvöld voru fulltrúar þriggja framboða í Reykjavík mættir til að ræða komandi sveitarstjórnarkosningar; Ingimar Þór Friðriksson, frambjóðandi Góðan daginn-framboðsins, Sigfús Aðalsteinsson frá Okkar borg og Silja Sóley Birgisdóttir frá Sósíalistum. Þá var þess getið að Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, hefði afþakkað boðið.
„Ég sá þetta sjálfur og mér brá svolítið þegar hann sagði að ég hefði afboðað, því ég gerði það aldrei,“ segir Guðmundur Ingi við Morgunblaðið í dag. Bætir hann við að hann fari þangað sem hann er sendur og allt svona fari í gegnum kosningastjórann.
Heimir Már segir í samtali við Morgunblaðið að hann geti ekkert gert í því hvað þáttastjórnendur boðuðu. „En við afþökkuðum að vera þarna,” segir hann og og virðist ósáttur við að fulltrúi Flokks fólksins hafi verið boðaður með fyrrnefndum framboðum.
Nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.