fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Rósa ráðin verkefnastýra Jafnvægisvogar FKA

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. mars 2026 13:28

Rósa Viggósdóttir verkefnastýra Jafnvægisvogar FKA. Mynd: Veronika Guls.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jafnvægisvog FKA er eitt sýnilegasta og áhrifamesta jafnréttisátak á sviði stjórnunar hér á landi og er Rósa Viggósdóttir ný verkefnastýra þessa mikilvæga hreyfiaflsverkefnis.

„Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Jafnvægisvogarinnar. Fyrir mér snýst þetta um skýra forystu, einföld og mælanleg markmið og raunveruleg áhrif. Þegar vilji, mælingar og eftirfylgni fara saman verður til árangur og þar liggur samkeppnisforskotið,“ segir Rósa.

Rósa býr yfir víðtækri reynslu af rekstri, sölu- og markaðsmálum. Hún er menntuð í alþjóðamarkaðsfræðum og með IPMA D-vottun í verkefnastjórnun. Hún situr jafnframt í stjórn FKA og þekkir því vel hlutverk og markmið Jafnvægisvogarinnar.

Á komandi ári verður lögð aukin áhersla á að styrkja Jafnvægisvogina sem skýran gæðastimpil í íslensku atvinnulífi, efla sýnileika hennar og tryggja að viljayfirlýsingar þátttakenda skili raunverulegum, mælanlegum árangri.

Markmiðið er að festa Jafnvægisvogina enn frekar í sessi sem leiðtogaverkefni þar sem jafnvægi í forystu er hluti af samkeppnisforskoti fyrirtækja.

„Jafnvægi í forystu gerist ekki af sjálfu sér það krefst skýrrar stefnu, mælanlegra markmiða og markvissrar eftirfylgni. Rósa sameinar faglega verkefnastjórn, víðtæka markaðsreynslu og sterka framkvæmdagetu. Hún er rétti leiðtoginn til að færa Jafnvægisvogina á næsta stig og styrkja hana sem leiðtogaverkefni og skýran gæðastimpil í íslensku atvinnulífi,“ segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogar FKA.

Rósa hefur tekið þátt í Viðurkenningarhátíð JV síðustu ár með ýmsum hætti: hefur veitt viðurkenningu viðtöku, tekið þátt í undirbúningi og látið um sig muna á deginum sjálfum sem sem stjórnarkona FKA og í gróðursetningu. Hér með henni er Jóhanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri Banana við gróðursetningu í Jafnréttislundi í Heiðmörk. Þar sem viðurkenningarhafar Jafnvægisvogar gróðursetja tré ár hvert.

Jafnrétti er ákvörðun

Jafnvægisvog FKA er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi með Creditinfo, Deloitte, dómsmálaráðuneyti, PiparTBWA, RÚV og Sjóvá. Tilgangur hreyfiaflsverkefnisins er að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi og hefur verkefnið mikil áhrif á samfélagsumræðuna ár hvert.

Jafnvægisvog FKA var sett á laggirnar árið 2018 með það skýra markmið að stuðla að auknu jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar í íslensku atvinnulífi. Verkefnið var frá upphafi hugsað sem hreyfiafl, ekki lagaskylda heldur hvati, byggt á þeirri einföldu staðreynd að jafnrétti gerist ekki af sjálfu sér. Jafnrétti er ákvörðun, það er afleiðing meðvitaðra ákvarðana, mælinga og gagnsæis.

Verkefnið hefur þróast í eitt sýnilegasta og áhrifamesta jafnréttisátak á sviði stjórnunar hér á landi.

Viðurkenningarhafar Jafnvægisvogar 2025 Mynd: Silla Páls.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Kynna til sögunnar nýja tryggingavernd hér á landi fyrir fólk í ofbeldissamböndum

Kynna til sögunnar nýja tryggingavernd hér á landi fyrir fólk í ofbeldissamböndum
Fréttir
Í gær

Birgitta Líf komin í nýtt starf – „Spennandi að fá tækifæri“

Birgitta Líf komin í nýtt starf – „Spennandi að fá tækifæri“
Fréttir
Í gær

Helmingur ungra bandarískra ferðamanna ljúga um þjóðerni sitt – Hundsa fyrirmæli og valda vandræðum á Íslandi

Helmingur ungra bandarískra ferðamanna ljúga um þjóðerni sitt – Hundsa fyrirmæli og valda vandræðum á Íslandi
Fréttir
Í gær

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna