Aðalsteinn ráðinn sölustjóri hjá Eirvík
Aðalsteinn Einarsson hefur verið ráðinn sölustjóri hjá Eirvík. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu undanfarin átta ár sem sölufulltrúi. Eirvík er fjölskyldufyrirtæki, stofnað 1994, sem sérhæfir sig í sölu á heimilistækjum og innréttingum.