fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Bogi Nils ósáttur við Eyjólf: Ráðherrar þurfi að tjá sig mjög varlega um skráð félög

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. mars 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur rætt við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra, og gert athugasemdir við ummæli sem hann lét falla í fréttum RÚV á dögunum.

Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag og rætt við Boga.

Staða Icelandair hefur verið töluvert til umræðu síðustu daga og hefur því verið velt upp hvort hætta sé á yfirtöku félagsins þar sem það er vanmetið á hlutabréfamarkaði. Eyjólfur kvaðst hafa miklar áhyggjur af stöðu Icelandair og að erlendir fjárfestar myndu nýta sér lágt hlutabréfaverð til að taka félagið yfir.

Sjá einnig: Haukur lýsir áhyggjum sínum: „Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira“

Bogi segist í viðtali við Morgunblaðið hafa gert athugasemdir við þær staðhæfingar sem birtust í umfjölluninni. Bendir hann á að árið hafi farið vel af stað hjá Icelandair og fjárhagsstaðan sé sterk.

Bogi segir að í samtali hans við ráðherra hafi komið fram að Eyjólfur hafi verið að tala út frá stóru myndinni í samhengi við samkeppnishæfni útflutningsfyrirtækja á Íslandi.

„En almennt séð tel ég að ráðherrar og aðrir í sambærilegum stöðum eigi að tjá sig mjög varlega um skráð félög á markaði,“ segir Bogi við Morgunblaðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Birgitta Líf komin í nýtt starf – „Spennandi að fá tækifæri“

Birgitta Líf komin í nýtt starf – „Spennandi að fá tækifæri“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Helmingur ungra bandarískra ferðamanna ljúga um þjóðerni sitt – Hundsa fyrirmæli og valda vandræðum á Íslandi

Helmingur ungra bandarískra ferðamanna ljúga um þjóðerni sitt – Hundsa fyrirmæli og valda vandræðum á Íslandi
Fréttir
Í gær

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt
Fréttir
Í gær

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sænskir borgarar verða sóttir til Dubai – Forgangsröðunin gagnrýnd og hvatt til þess að herinn verði sendur

Sænskir borgarar verða sóttir til Dubai – Forgangsröðunin gagnrýnd og hvatt til þess að herinn verði sendur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hjalti Úrsus krefur Mosfellsbæ um bætur – „Ég þurfti að selja tækin á slikk“

Hjalti Úrsus krefur Mosfellsbæ um bætur – „Ég þurfti að selja tækin á slikk“