fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 9. mars 2026 13:52

Teikning af Lindex Smáralind.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og verður staðsett við hlið Hagkaups í Smáralind þar sem Útilíf var áður til húsa. 

Framkvæmdir á rýminu hefjast á næstu dögum og mun verslunin uppfylla allar nýjustu kröfur Lindex í Svíþjóð, sem þýðir að verslunin verður ein sú flottasta í Evrópu. Stefnt er á opnun á Lindex í Smáralind í maí 2026. S4S opnaði netverslunina lindex.is í síðustu viku.

„Netverslunin lindex.is opnaði í byrjun vikunnar og hafa móttökurnar og skráning í Lindex klúbbinn verið framar vonum. Við erum því full tilhlökkunar að geta opnað glæsilega verslun í Smáralind í vor“, segir Tinna Sigrún Pétursdóttir, markaðsstjóri S4S. „Samstarfið við Smáralind hefur verið afar farsælt í gegnum árin, en S4S rekur nú þegar verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið og AIR í Smáralind.“

Tinna Sigrún Pétursdóttir, markaðsstjóri S4S

„Við erum afar spennt fyrir opnun nýrrar Lindex verslunar í Smáralind í vor. Lindex hefur notið mikilla vinsælda í Smáralind í gegnum árin og byggt upp sterkan og tryggan viðskiptavinahóp sem mun eflaust gleðjast yfir því að vörumerkið haldi áfram rekstri sínum í Smáralind,“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar.

Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar. Mynd: Aldís Páls.
698 66 68
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt
Fréttir
Í gær

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna

Egill spyr hvort hægt sé að sækja um hæli til að losna við ESB-umræðuna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Barnaheill hefja neyðarsöfnun fyrir börn í Mið-Austurlöndum

Barnaheill hefja neyðarsöfnun fyrir börn í Mið-Austurlöndum