

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, telur að skýringar olíufélaganna á hækkuðu olíuverði haldi ekki vatni. Félögin séu snögg að hækka við minnsta tilefni en þegar kemur að lækkunum þá draga félögin lappirnar.
Þingmaðurinn vísar í færslu sinni til frétta um að átökin í Miðausturlöndum hafi valdið hækkunum á heimsmarkaðsverði eldsneytis og að verð sé þegar farið að hækka á Íslandi.
„Umsvifalausar hækkanir olíufélaganna á bensínu og dísel, sem greint var frá í fréttum í gær hljóta að vekja spurningar. Ég skal viðurkenni að svona hækkanafréttir frá þeim eru aðeins eins og veðurfréttir. Eitthvað sem virðist óviðráðanlegt – og leiðinlegt.“
Dagur segir að um leið og hann hafi lesið um hækkanir olíufélaganna hér á landi hafi hann lesið greiningu hjá miðlinum The Economist um að reikna mætti með að áhrifa átakanna á olíuverð myndi fyrst gæta í Asíu en síðar í Evrópu vegna þess að nánast ekkert af olíunni sem er seld á Evrópumarkaði komi frá átakasvæðum. Sömuleiðis minnir Dagur á að þegar heimsmarkaðsverð lækkar þá segist íslensku olíufélögin ekki geta lækkað verð strax þar sem félögin eigi enn birgðir sem voru keyptar á hærra verði sem þurfi að klára. Ekkert sé þó minnst á birgðir sem voru keyptar á lægra verðinu, þegar tilefni gefst til hækkana.
„Í ljósi þess að birgðir eru alltaf einhverjar að þá hlýtur að mega – og verða – að spyrja hvernig á því standi að verð á dælu hækki um leið og heimsmarkaðsverð. Ég kannast nefnilega ekki við að það lækki um leið og heimsmarkaðsverð lækki – þá er sagt er verið sé að selja gamlar birgðir á „háa verðinu“, ekki satt? Er ekki eitthvað bogið við þetta? Hver kann svör við þessu?“