fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Fréttir

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. febrúar 2026 09:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, ákvað að þiggja ekki boð Melaniu Trump, forstafrúar Bandaríkjanna og eiginkonu Donald Trump, um að vera viðstaddur athöfn í Hvíta húsinu í marsmánuði.

RÚV greinir frá þessu og segir að um sé að ræða athöfn þar sem framtaki hennar, Fostering the Future Together, verður hleypt úr vör. Er markmið framtaksins að tryggja velferð barna í krafti menntunar, nýsköpunar og tækni.

Skrifstofa forseta Íslands segir í svari við fyrirspurn RÚV að Björn hafi fengið boð frá Melaniu en hann sjái sér ekki fært að þiggja boðið.

Fleiri makar eru í sömu stöðu og Björn og segir RÚV frá því að eiginkona Jonasar Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs, og Suzanne Innes-Stubb, eiginkona Alexanders Stubbs, forseta Finnlands, hafi einnig afþakkað boð Melaniu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómurinn yfir Steinu Árnadóttur stendur – Sakfelld fyrir manndráp af gáleysi en ekki gerð refsing

Dómurinn yfir Steinu Árnadóttur stendur – Sakfelld fyrir manndráp af gáleysi en ekki gerð refsing
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leggja til aðra lausn en Borgarlínu – „Hneppi íbúa þar nánast í stofufangelsi á meðan“

Leggja til aðra lausn en Borgarlínu – „Hneppi íbúa þar nánast í stofufangelsi á meðan“