fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Lögregla varar við lítt þekktu fíkniefni sem komið er í umferð hér á landi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 14:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í samvinnu við tollinn hefur lögreglan á Norðurlandi eystra nýlega lagt hald á tæp 60 kíló af fíkniefninu Kratom í tveimur aðskildum málum.

„Kratom er lítt þekkt á Íslandi. Virka efnið í Kratom er mítragýnin. Efnið hefur bæði örvandi áhrif en jafnframt deyfandi í stærri skömmtum. Kratom duft er grænt að lit og líkist grænu te og fæðubótarefni. Kratom kemur frá plöntunni Mitragyna speciosa sem á uppruna sinn í suðaustur Asíu,“ segir í tilkynningu sem lögreglan á Norðurlandi eystra birti á Facebook-síðu sinni.

Í tilkynningunni er bent á að Kratom sé fíkniefni og ólöglegt á íslensku forráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni.

„Lögreglan varar fólk við notkun efnisins en upplýsingar erlendis frá bera með sér að efnið sé þar jafnvel selt fólki ranglega sem fæðubótarefni eða náttúrulyf. Efnið getur verið enn skaðlegra sé það notað með öðrum vímugjöfum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli