fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Rúmeni á yfir höfði sér margra ára fangelsi hér á landi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega þrítugur Rúmeni, Ionut Mihai Dinescu, hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Honum er gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á rúmlega 10 kg af sterku ketamíni til landsins, ætluðu til dreifingar og sölu hér á landi.

Ákærði flutti efnin í farþegaflugi hingað til lands frá Amsterdam í Hollandi þann 19. desember 2025. Voru efnin falin í ferðatösku hans við komuna til landsins.

Um er að ræða mikið magn af sterkum fíkniefnum og miðað við dómafordæmi má ákærði búast við nokkurra ára fangelsi.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness næstkomandi miðvikudag, 25. febrúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Banaslys í Skorradalsvatni

Banaslys í Skorradalsvatni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri