fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hefur mátt þola hávaða og ónæði um árabil en þorir ekki að leita til lögreglu

Jakob Snævar Ólafsson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 18:30

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð á kvörtun íbúa í fjöleignarhúsi í ónefndu sveitarfélagi. Segist íbúinn hafa þurft að lifa við hávaða og ónæði frá öðrum íbúa í húsinu í áraraðir en vegna smæðar sveitarfélagins hafi hann veigrað sér við að leita til lögreglu.

Kvörtunin var lögð fram í síðasta mánuði. Fram kom í henni að um árabil hafi mikill hávaði og ónæði borist frá næstu íbúð fyrir ofan þá sem íbúinn leigir í tilgreindu fjöleignarhúsi. Segist íbúinn hafa veigrað sér við að leita til lögreglu vegna málsins þar sem hann búi í litlu samfélagi. Af þeim sökum og þar sem hann hafii ekki vitað hvernig best væri að snúa sér í málinu hafi hann leitað til umboðsmanns í von um að hann gæti beitt sér í málinu eða unnið að því að málið verði kannað til að fá skýringar á því.

Einkamál

Umboðsmaður bendir hins vegar íbúanum á að ágreiningur sem kunni að koma upp á milli eigenda og íbúa í fjöleignarhúsi sé í eðli sínu einkaréttarlegur og falli þar af leiðandi utan starfssviðs umboðsmanns. Því sé ekki mögulegt að taka kvörtunina til nánari athugunar.

Bendir umboðsmaður þó á að í lögum um fjöleignarhús sé fjallað um húsreglur og segi þar að stjórn húsfélags skuli semja og leggja fyrir húsfund til slíkar reglur og skuli í þeim meðal annars fjallað um bann við röskun á svefnfriði í húsinu a.m.k. frá miðnætti til kl. 7 að morgni og undanþágur frá því banni. Í lögunum segi enn fremur að greini eigendur fjöleignarhúsa á um réttindi sín og skyldur samkvæmt lögunum geti þeir leitað til kærunefndar húsamála og óskað eftir álitsgerð um ágreiningsefnið sem kærunefndin skuli láta í té svo fljótt sem kostur sé. Telji kærunefndin að lög um fjöleignarhús hafi verið brotin og að á rétt aðila sé hallað beini hún tilmælum til gagnaðila um úrbætur. Það séu þó aðeins eigendur í fjöleignarhúsi sem geti leitað til nefndarinnar en eins og áður segir er íbúinn leigjandi í húsinu.

Sá möguleiki virðist því vera fyrir hendi að íbúinn biðji eiganda íbúðarinnar að grípa til aðgerða og að minnsta kosti leita til kærunefndar húsamála.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”