fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Undarlegar blekkingar komu í ljós þegar ísskápur skemmdist

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 18:00

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa er til húsa í Borgartúni 29 í Reykjavík. Mynd: Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur vísað frá kæru konu sem varð fyrir því að ísskápur í hennar eigu skemmdist í flutningi. Krafðist hún bóta frá þeim aðila sem hún pantaði flutninginn hjá sem neitaði að greiða þær. Svo virðist hins vegar sem að viðkomandi hafi þóst vera á vegum tiltekins fyrirtækis og ekki tókst að finna upplýsingar um hver það raunverulega var sem konan pantaði flutninginn hjá.

Kæran var lögð fram í desember síðastliðnum og krafðist konan bóta vegna tjónsins sem varð á ísskápnum.

Fram kemur í niðurstöðum nefndarinnar að konan hafi haft samband við aðilann í gegnum Facebook og óskað eftir þjónustu hans við flutninginn á ísskápnum. Sagði konan að einstaklingur á vegum aðilans hafi annast flutninginn. Aðilinn hafi hins vegar neitað að greiða henni bætur vegna tjónsins. Sagðist konan ekki hafa greitt fyrir þjónustuna,  en upphaflega hafi staðið til að greiða fyrir hana með reiðufé. Af þeim sökum hafi hún ekki fengið greiðsluupplýsingar eða aðrar formlegar upplýsingar um aðilann.

Hver var þetta?

Segir nefndin að í kæru sinni hafi konan tilgreint nafn aðilans eins og það komi fram á Facebook-síðu hans en engar frekari tengiliðaupplýsingar, svo sem kennitala eða netfang, séu gefnar þar upp. Undir rekstri málsins hafi konan lagt fram ljósmynd af skráningarnúmeri bifreiðar sem hún telji að hafi verið notuð við flutninginn. Sú bifreið sé skráð í eigu tiltekins fyrirtækis og konan gefið upp heimilisfang þess fyrirtækis. Engar upplýsingar sé að finna um uppgefið nafn aðilans, sem konan samdi við, í Þjóðskrá eða í fyrirtækjaskrá Skattsins og liggi ekki fyrir að viðkomandi hafi starfað í umboði eða á vegum þess fyrirtækis sem eigi þessa bifreið.

Kærunefndin segist hafa óskað eftir því við konuna að hún myndi leggja fram frekari upplýsingar um aðilann svo unnt væri að bjóða honum aðild að málinu. Í því skyni hafi konunni verið leiðbeint og bent á hvaða gögn eða upplýsingar gætu verið til þess fallin að skýra hver aðilinn sé. Hún hafi hins vegar upplýst að hún hafi ekki frekari gögn eða upplýsingar undir höndum og hafi því ekki getað orðið við beiðni nefndarinnar.

Segir nefndin því að í ljósi þess að ekki hafi tekist að afla fullnægjandi upplýsinga um aðilann hafi ekki verið mögulegt að bjóða viðkomandi aðild að málinu. Telur nefndin þar af leiðandi sér ekki fært að kveða upp úrskurð um kröfu konunnar og verði því að vísa henni frá. Konan geti hins vegar óskað eftir að málið verði tekið til meðferðar að nýju með framlagningu gagna og upplýsinga um hinn, enn sem komið er, óþekkta aðila sem hún pantaði flutninginn á ísskápnum hjá.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”