fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gefa allan ágóða miðasölu til fjölskyldu drengsins sem lést í bílslysinu á Miklubraut – „Fyllum höllina – fyrir Patta!“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skautafélag Reykjavíkur (SR) og Fjölnir hafa tekið höndum saman til að minnast Patreks Freys Sveinssonar sem lést í umferðarslysi á Miklubraut á fimmtudagskvöldið. Patrekur var aðeins 17 ára gamall þegar hann lést, en hann fagnaði afmæli sínu í lok janúar.

Patrekur, eða Patti eins og hann var kallaður, æfði og keppti lengi með Fjölni í íshokkí áður en hann gekk til liðs við SR. Því hefur verið ákveðið að fyrirhugaður leikur karlaliða SR og Fjölnis í Egilshöll á þriðjudag verði spilaður á heimavelli Patreks í Laugardal. Leikurinn hefst 19:45, en liðin hafa ákveðið að allur ágóði af miðasölu leiksins muni renna óskiptur til fjölskyldu Patreks. Frá þessu er greint á Facebook.

„Reykjavíkurliðin tvö hafa ákveðið að allur ágóði af miðasölu þessa leiks renni óskiptur til fjölskyldu hans, svo hún þurfi, í sinni ólýsanlegu sorg, að hafa minni áhyggjur af kostnaði vegna andláts sonar síns.

Foreldrafélag SR ætlar að leggja málefninu lið og gefur allan ágóða af veitingasölu á leiknum. Einnig verður glæsilegur kökubasar á leiknum þar sem hægt verður að kaupa bakkelsi til styrktar fjölskyldunni.“

SR bendir einnig á styrktarreikning sem er opinn fyrir frjálsum framlögum:

0511-14-077086, kt. 150886-3419

„Við hvetjum allt íshokkífólk og aðra sem vilja sýna hug sinn í verki, minnast Patreks og styrkja fjölskylduna í gegnum erfiða tíma að mæta í Skautahöllina í Laugardal næsta þriðjudag kl. 19.45.
Fyllum höllina – fyrir Patta!“

Sjá einnig: Kveðja piltinn sem lést í umferðarslysi á Miklubraut – „Við vottum fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“