fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
Fréttir

Liverpool staðfestir kaup á Jacquet

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 07:48

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur náð samkomulagi um kaup á franska varnarmanninum Jeremy Jacquet frá Stade Rennais. Jacquet mun þó ekki ganga strax til liðs við Liverpool heldur flytja til Anfield fyrir tímabilið 2026-27, að því gefnu að atvinnu og alþjóðleg leikheimild fáist.

Samningurinn felur í sér að hinn 20 ára miðvörður klárar yfirstandandi tímabil í frönsku deildinni áður en hann skrifar undir langtímasamning við Liverpool í sumar 2026. Jacquet hefur spilað 18 leiki í Ligue 1 á tímabilinu og á fimm landsleiki að baki fyrir U21 árs lið Frakklands.

Alls hefur hann komið við sögu í 31 leik fyrir Rennes frá því hann þreytti frumraun sína í janúar 2024. Hann fékk einnig dýrmæta reynslu í efstu deild á láni hjá Clermont Foot.

Jacquet var í lykilhlutverki með franska U19 ára landsliðinu sem fór í úrslitaleik Evrópumótsins 2024 og var valinn í úrvalslið mótsins. Liverpool lítur á hann sem fjárfestingu til framtíðar í vörninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þorbjörg Sigríður: Sjálfstæðisflokkurinn að elta Miðflokkinn – Ummæli varaformannsins með ólíkindum

Þorbjörg Sigríður: Sjálfstæðisflokkurinn að elta Miðflokkinn – Ummæli varaformannsins með ólíkindum
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Krefjast lögreglurannsóknar á fyrrum ráðherra sem sendi ríkisleyndarmál á Epstein

Krefjast lögreglurannsóknar á fyrrum ráðherra sem sendi ríkisleyndarmál á Epstein
Fréttir
Í gær

Ætla ekki að selja 230 ára ættaróðalið fyrir skammtímagróða einnar kynslóðar

Ætla ekki að selja 230 ára ættaróðalið fyrir skammtímagróða einnar kynslóðar
Fréttir
Í gær

Kári ósáttur og segir Morgunblaðið vísvitandi afvegaleiða lesendur – „Eins slæm blaðamennska og hugsast getur“

Kári ósáttur og segir Morgunblaðið vísvitandi afvegaleiða lesendur – „Eins slæm blaðamennska og hugsast getur“