fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Fréttir

Skemmtileg nálgun á textíl, saumaskap og smíði

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 17:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Textíllistakonan og hönnuðurinn Emma Shannon verður með spennandi smiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi, miðvikudaginn 4. febrúar.
Yfirskrift smiðjunnar er „make-a-thek: Rafmagnaður textíll“ með Emmu Shannon. Í henni kynnir Emma meðal annars skapandi nálganir á saumaskap, smíði og tilraunir með textíltengda tækni. Þátttakendur kynnast svokölluðum „raftextíl“, eða e-textile eins og hann kallast á ensku, og læra að sameina textíl og einfalda rafeindatækni á skemmtilegan hátt.
Vinnustofan er ætluð öllum fullorðnum sem áhuga hafa á textíl, list, hönnun eða STEAM. Fyrri reynsla er ekki nauðsynleg. Að smiðju lokinni hafa þátttakendur öðlast betri skilning á raftextíl og sjálfstraust til að hefja eigin tilraunir.
Smiðjan fer fram klukkan 19:30 – 21:00.
Ókeypis þátttaka, en skráning nauðsynleg á heimasíðu Borgarbókasafnsins.
Öll hjartanlega velkomin.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
Fréttir
Í gær

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda
Fréttir
Í gær

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu
Fréttir
Í gær

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi
Fréttir
Í gær

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari