fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stefán segir auglýsingamagnið svipað og í fyrri stórmótum

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 08:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að magn auglýsinga í kringum útsendingar RÚV frá EM í handbolta sé svipað og hefur verið á fyrri stórmótum.

Þetta segir Stefán í samtali við Morgunblaðið í dag, en töluverð umræða hefur skapast um magn auglýsinga í kringum útsendingar íslenska liðsins.

Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Félags íþróttafréttamanna, vakti athygli á þessu í ræðu á Alþingi í síðustu viku.

Sjá einnig: Tómas Þór ósáttur við auglýsingaflóðið hjá RÚV – „Enginn fékk að sjá strákana okkar fagna“

„Það skipti engu máli hvað var að gerast. Það voru langir pakkar fyrir leik, í hálfleik og eftir leik, meira að segja beint eftir leik þannig að enginn sem var að horfa á leikinn fékk að njóta góðs af því að sjá strákana okkar fagna þessum merka sigri,“ sagði Tómas um leik Íslands og Póllands í riðlakeppninni. Hann hélt svo áfram:

„Steininn tók nú eiginlega úr í hálfleik — þó að ég ætli ekki að vera einhver gamall kall að öskra á ský — því að auglýsingadeildin þurfti svo mikið að koma fleiri auglýsingum að og afla meiri tekna fyrir ríkissjónvarpið að okkur var öllum sagt að fara inn á miðil Meta til að sjá frekari umfjöllun. Ég vil bara sjá minn Ólaf Stefánsson í ríkissjónvarpinu sem ég borga fyrir. Ég vil ekki fara inn á miðil Meta til að gera það.“

Stefán segir við Morgunblaðið í dag að auglýsingar birtist með sambærilegum hætti og áður.

„Útsendingarstjórn stýrir því hvenær farið er í auglýsingar í samvinnu við íþróttadeild. Eftir leiki tekur tíma fyrir leikmenn að koma sér af velli og vera reiðubúnir í viðtöl auk þess sem verið er að taka saman svipmyndir úr leiknum. Því er oft hentugt að fara í auglýsingar á þeim tímapunkti,” segir hann meðal annars.

Þá segir Stefán ekki óeðlilegt að áhorfendum sé beint inn á miðil Meta eins og Tómas gagnrýndi. „Varðandi dreifingu á samfélagsmiðlum, þá leitast Ríkisútvarpið við að nálgast áhorfendur eftir sem flestum dreifileiðum, í samræmi við lög og skyldur Ríkisútvarpsins.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”