fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hafnarfjarðarmálið: Helgi Bjartur kemur brátt fyrir dómara

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 23. janúar 2026 12:59

Helgi Bjartur Þorvarðarson. Mynd: Félag fasteignasala

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Bjartur Þorvarðarson, maður á fimmtugsaldri, sem ákærður hefur verið fyrir húsbrot í Hafnarfirði og kynferðisbrot gegn 10 ára dreng, kemur fyrir dómara í næstu viku.

Þingfesting verður í málinu í Héraðsdómi Reykjaness miðvikudaginn 28. október kl. 9:30. Helgi mun þá svara ákæru, þ.e. lýsa yfir sekt eða sakleysi. Hann hefur þegar lýst yfir sakleysi í yfirlýsingu sem hann sendi til fjölmiðla á dögunum.

Sjá einnig: Helgi lýsir yfir sakleysi – „Þetta er martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“

Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. febrúar en fyrirsjáanlegt er að gæsluvarðhald verði framlengt þar sem dómur gengur ekki í máli hans fyrr en löngu síðar.

Ekki liggur fyrir hvenær aðalmeðferð verður í málinu. Fjölmiðlar hafa ekki ákæruna undir höndum en geta beðið um afrit af henni hjá dómstólnum eftir þingfestingu málsins.

Sjá einnig: Helgi keypti þjónustu vændiskonu sama kvöld – Síminn hans hefur ekki fundist

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“