

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki farið varhluta af mikilli hálku í dag og þá ekki síst nú fyrr í morgun. Nokkuð hefur verið um árekstra og á annan tug hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans eftir að hafa dottið í hálkunni. Ljóst er að hálkan er erfið viðureignar og miðað við umræðu á samfélagsmiðlum lentu margir í stökustu vandræðum og leist ekkert á blikuna. Einnig er nokkuð um kvartanir einkum meðal íbúa í Reykjavík yfir því að lítið hafi orðið vart við hálkuvarnir en borgarstjóri segir að fresta hafi þurft að hálkuverja vegna rigningar í nótt en nú sé unnið af kappi um alla borg.
Hálkan í dag og morgun hefur lýst sér ekki síst í þunnu lagi af ís sem myndast eftir að ringt hefur og síðan kólnað. Eins og margir vita er hálka af þessu tagi einna erfiðust viðureignar ekki síst af því hún sést ekki alltaf vel á myrkum vetrarmorgnum.
Íbúar í vesturbæ Reykjavíkur áttu margir hverjir erfitt með að komast leiðar sinnar í hálkunni. Kona sem fór út að ganga með hund sinn í morgun gekk fram á tvo unga drengi á leið í skólann sem lentu í miklu vandræðum með að fóta sig í hálkunni. Hún segir svo frá:
„Það er MORÐHÁLKA úti! Ég hjálpaði þessum litlu gaurum í skólann, fékk þá til að labba yfir KR völlinn, þeir voru samt smá stressaðir að gera það því þetta væri jú fótboltavöllur, en yfir fóru þeir í aðeins minni hættu. Þetta er ekki boðlegt!!!“
Faðir annars drengjanna þakkar konunni kærlega fyrir í athugasemd og segist einfaldlega ekki hafa áttað sig á hversu hált væri úti fyrr en hann fór sjálfur að heiman skömmu á eftir drengnum.
Annað foreldri segir í athugasemd við færslu konunnar að sín börn hafi lent í miklum erfiðleiðkum í hálkunni og kvartar yfir takmörkuðum hálkuvörnum í Vesturbænum:
„Á nú þegar barn sem hefur slasast alvarlega í hálkuslysi einmitt á skólalóð. Líst ekkert á þetta salt og sandleysi allstaðar.“
Fleiri taka undir kvartanir um skort á hálkuvörnum:
„Af hverju er þetta svona flókið? Landið heitir Ísland, það ætti að vera einhver vísbending um að það sé gott að hafa svona hluti í lagi. Í hvað fer útsvarið og vinnutími 23 borgarfulltrúa?“
Í íbúahópi íbúa í Langholtshverfi er einnig rætt um hálkuna og varar kona sem starfar við blaðburð við því að hálkan sé afar mikil. Þar er einnig kvartað yfir skorti á hálkuvörnum. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ritar athugassemd við færsluna þar sem hún segir að starfsfólk borgarinnar hafi verið að sanda og salta í nótt til að hálkuverja en þurft að fresta verkefninu um tíma vegna þess að það hafi ringt og þá skoli öllu burt. En það sé unnið af kappi um alla borg núna.
Hjólreiðamenn ræða einnig hálkuna og ein kona segist hafa lent í miklum vandræðum á sínu hjóli:
„Er mig að misminna að hjólastígar hafi einu sinni verið saltaðir? Þetta er annar dagurinn í röð sem ég óttast um líf mitt á stígunum, þrátt fyrir vönduð nagladekk og áralanga reynslu af bæði samgöngu- og fjallahjólreiðum. Það eru vissulega frekar óvenjulegar aðstæður í dag en ég hefði haldið að smá salt hefði getað leyst þessa hálku upp ansi víða, allavega í gær. Er salt dottið úr tísku?“
Einn maður segir að vegir fyrir bíla hafi verið settir í forgang og saltaðir fyrst en annar maður vill þó meina að hann hafi orðið var við æði misjafnar hálkuvarnir á leið um Reykjavík á hjóli í morgun en margir gangandi og hjólandi hafi sums staðar lent í miklum vandræðum vegna skorts á hálkuvörnum. Hann gefur lítið fyrir skýringar borgarinnar um að lítið gagn hafi reynst í því að nota salt vegna rigningar:
„Þetta ferðalag mitt sýnir mér að skýringin með að saltið hafi blandast undir einhverja rigningu er bara fyrirsláttur og vitleysa. Það bara var ekki saltað.“
Reykjavíkurborg og einnig Mosfellsbær segja íbúa geta nálgast sand og salt á þjónustustöðvum sveitarfélaganna.
Það er þó víðar hálka en bara á höfuðborgarsvæðinu eins og fram kemur í innleggi Landspítalans sem hvetur landsmenn til að ganga eins og mörgæsir til að forðast að detta í hálkunni.