
Fyrirtækið Hvalur hf. hefur fengið gjöld sem fyrirtækið var rukkað um vegna kostnaðar við eftirlit starfsmanna Fiskistofu um borð í skipum félagsins endurgreidd frá íslenska ríkinu. Hafði fyrirtækið áður lagt fram stefnu vegna gjaldanna.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skriflegu svari Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um kostnað við eftirlit með hvalveiðum.
Svarið nær yfir árin 2013-2023 og ekki er að finna þar neina heildarupphæð en hins vegar sundurliðun eftir því um hvaða hluta eftirlitsins var að ræða, hvort um var að ræða kostnað Matvælastofnunar eða Fiskistofu og einnig hvesru háar upphæðir voru innheimtar hjá handhöfum hvalveiðileyfa.
Segir jafnframt í svarinu að við setningu reglugerða nr. 917/2022 og 895/2023 hafi eftirlit með hvalveiðum verið aukið og eftirlitsmenn Fiskistofu sinnt eftirlitinu um borð í hvalveiðiskipum Hvals hf. en umræddar reglugerðir voru settar af Svandísi Svavarsdóttur þegar hún gegndi embætti matvælaráðherra.
Segir enn fremur að Matvælastofnun hafi borist reikningur vegna kostnaðar Fiskistofu við eftirlitið árið 2022 sem fyrrnefnda stofnunin hafi innheimt hjá Hval. Hvalur hafi greitt þjónustugjöldin með fyrirvara um að gjaldtakan væri án lagastoðar og að fyrirtækið myndi höfða mál fyrir dómstólum þar sem krafist yrði endurgreiðslu.
Í kjölfarið hafi Hvalur hf. stefnt málinu fyrir héraðsdóm og krafðist endurgreiðslu á þessum eftirlitsgjöldum sem hafi verið tilkomin vegna eftirlits starfsmanna Fiskistofu og Matvælastofnun hefði innheimt á grundvelli laga um velferð dýra. Ríkislögmaður hafi séð um vörn málsins og eftir að hafa farið yfir stefnu og umsagnir Matvælastofnunar og sjónarmið ráðuneytisins hefðu lögfræðingar ríkislögmanns talið vera ákveðna annmarka á gjaldtökunni. Eftir samráð aðila hafi verið ákveðið að Matvælastofnun myndi endurgreiða Hval hf. allan kostnað vegna eftirlits starfsmanna Fiskistofu fyrir hönd Matvælastofnunar ásamt dráttarvöxtum.
Tekið er sérstaklega fram að þessi endurgreiddi kostnaður sé ekki inni í þeim fjárhæðum sem finna megi í töflu 2 í svarinu en þar er að finna innheimtan kostnað Matvælastofnunar vegna vinnslu- og heilbrigðiseftirlits samkvæmt gjaldskrá en kostnaðurinn var innheimtur frá handhöfum veiðileyfa.
Í töflu 3 er hins vegar yfirlit yfir kostnað Matvælastofnunar vegna hvalveiða og þar kemur fram að árið 2022 hafi stofnunin verið rukkuð af Fiskistofu um 6.162.000 krónur og árið 2023 um 2.870.000 krónur. Miðað við orðalagið í svari ráðherrans hefur Matvælastofnun síðan væntanlega rukkað Hval um þessar upphæðir en þar sem kemur fram einnig að endurgreiðslan snúi að eftirliti Fiskistofu, sem stofnunin rukkaði Matvælastofnun fyrir sem síðan rukkaði Hval, vegna ársins 2022 liggur því beinast við að álykta að fyrrnefndu upphæðina hafi Hvalur fengið endurgreidda. Það er þó ekki skýrt tekið fram og það kemur heldur ekki fram hversu háar dráttarvaxtargreiðslurnar, sem komu til viðbótar voru.
Það liggur því ekki fyrir á þessari stundu hversu mikið Hvalur fékk endurgreitt frá Matvælastofnun og hvort félagið hafi dregið stefnuna til baka í kjölfarið er ekki heldur tekið fram en það verður þó að teljast líklegt.