fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Búið að leggja fram frumvarp um innlimun Grænlands í Bandaríkin

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 11:30

Frá Nuuk á Grænlandi. Mynd: Oliver Schauf - Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frumvarp, eða réttara sagt þingsályktunartillaga, hefur verið lagt fram í fulltrúadeild Bandaríkjaþings um að Grænland verði gert að 51. ríki Bandaríkjanna.

Það er Randy Fine, sem er þingmaður Repúblikana í 6. kjördæmi Flórída, sem leggur tillöguna fram en hann var kjörinn þingmaður í apríl á síðasta ári í aukakosningum sem efnt var til eftir að þingmaður kjördæmisins, Mike Waltz, sagði af sér til að taka við stöðu þjóðaröryggisráðgjafa Donald Trump Bandaríkjaforseta. Fine er einarður stuðningsmaður forsetans.

Fjölmiðillinn The Hill, sem sérhæfir sig í fréttum úr bandaríska þinginu og stjórnmálum í Washington almennt, vitnar í fréttatilkynningu frá skrifstofu þingmannsins þar sem segir að Grænland sé ekki fjarlægur staður sem Bandaríkin geti hunsað heldur afar mikilvægt fyrir þjóðaröryggi. Hver sem stjórni Grænlandi stjórni siglingaleiðum um norður-heimsskautið og þeim öryggisramma sem verndi Bandaríkin. Það sé ekki hægt að láta þá framtíð í hendur ríkisstjórna sem hati bandarísk gildi og vilji grafa undan öryggi landsins.

Þótt þingmálið sem Fine hefur lagt fram sé kallað frumvarp af honum sjálfum, The Hill og í skjalinu sjálfu er í raun ekki um lagafrumvarp að ræða heldur þingsályktunartillögu. Það segir hins vegar í tillögunni að það megi kalla hana lög um innlimun Grænlands ( e. Greenland Annexation and Statehood Act).

Ríki

Samkvæmt tillögunni yrði Trump forseta falið að grípa til nauðsynlegra aðgerða, þar með talið samningaviðræðna við Danmörku, um að innlima eða á annan hátt gera Grænland að bandarísku landsvæði. Þegar því sé lokið skuli forsetinn skila þinginu skýrslu um þær breytingar á bandarískum lögum sem hann telji nauðsynlegt að gerðar verði til að hægt sé með formlegum hætti að gera Grænland að 51. ríki Bandaríkjanna. Þetta skuli gert til að hraða því að þingið samþykki að Grænland bætist við Bandaríkin en það verði þó ekki gert fyrr en að á Grænlandi verði tekin upp stjórnarskrá sem verði í samræmi við stjórnarskrá Bandaríkjanna og að þannig verði Grænland hluti af hinu stjórnarskrárbundna lýðveldi.

Í umræðum á samfélagsmiðlum er því haldið fram að tillagan feli fyrst og fremst í sér sýndarmennsku og litlar líkur séu á að hún nái fram að ganga. Velta má fyrir sér hvort tillagan sé lögð fram til að hjálpa forsetanum að auka þrýstinginn á að niðurstaða náist um framtíð Grænlands sem sé honum þóknanleg.

Trump og hans fólk halda áfram að leggja áherslu á það sé afar mikilvægt fyrir Bandaríkin að ná yfirráðum yfir Grænlandi því annars muni Kína eða Rússland gera það. Í nótt að íslenskum tíma birti Hvíta húsið mynd á samfélagsmiðlasíðum sínum til að leggja áherslu á að forsetanum væri full alvara með það.

Mynd: Skjáskot af Facebook-síðu Hvíta hússins.

Kollegar Fine á Bandaríkjaþingi eru alls ekki allir sammála því að innlima eigi Grænland. Þingmenn úr báðum flokkum og báðum deildum hafa andmælt áformunum og minna á að verði af þeim boði það líklega endalok Atlantshafsbandalagsins (NATO) í núverandi mynd og muni stórskaða samband Bandaríkjanna við þau ríki sem hafi verið þeirra nánustu bandamenn undanfarna áratugi. Þingmenn Demókrata hafa sagt að muni forsetinn reyna fjandsamlega yfirtöku á Grænlandi muni þeir gera allt sem í þeirra valdi stendur til að reyna að stöðva það.

Beðið er með óþreyju hvað kemur út úr fundi Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur og Vivian Motzfeld utanríkisráðherra Grænlands á morgun en fundurinn fer fram í Bandaríkjunum. Danska ríkisútvarpið greindi síðan frá því rétt í þessu að J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna muni einnig sitja fundinn. Fram kemur í umfjölluninni að það auki enn á alvarleika málsins og spennuna sem sé til staðar enda hafi Vance gagnrýnt dönsk stjórnvöld og sagt þau alls ekki standa sig í stykkinu við að verja Grænland og Dani ekki vera góða bandamenn Bandaríkjanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“