Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því í tilkynningu að íslenskur karlmaður hafi farið nýlega á heimili eldri borgara í umdæmi hennar og þóst vera starfsmaður Microsoft. Þannig hafi honum tekist að hafa umtalsverða fjármuni af fólkinu.
Í tilkynningunni segir að málið sé rannsakað sem fjársvikamál. Maðurinn hafi sagt við eldri borgaranna að hann væri starfsmaður Microsoft og vera kominn þeim til aðstoðar. Honum hafi verið hleypt inn og veittur aðgangur að tölvu þar sem hann millifærði umtalsverða fjármuni af bankareikningum heimilisfólksins.
Í tilkynningunni segir að þetta sé alvarleg þróun frá hefðbundnum Microsoft símasvindlum þar sem fjársvikararnir séu nú farnir að fá að því er virðist innlenda aðila til að fara inn á heimili fólks í stað þess að hringja.
Lögreglan hvetur alla til að vera á varðbergi gagnvart slíkum fjársvikum og vill minna á að starfsmenn Microsoft koma aldrei óumbeðnir heim til einstaklinga, óska aldrei eftir aðgangi að tölvum, símtækjum, iPad eða bankareikningum og biðja aldrei um persónulegar upplýsingar í gegnum síma.
Lögreglan bendir þeim á sem hafa orðið fyrir fjársvikum að hafa strax samband við bankann sinn, hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 og safna saman öllum upplýsingum um atvikið og senda á netfangið cybercrime@lrh.is.
Að lokum kemur fram í tilkynningunni að lögreglan sé með málið til rannsóknar og hvetji alla sem kunni að hafa orðið fyrir álíka fjársvikum til þess að hafa samband.