fbpx
Fimmtudagur 07.ágúst 2025
Fréttir

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 7. ágúst 2025 14:10

Digranesvegur 5 í Kópavogi, sem á árum áður hýsti meðal annars Útvegsbanka Íslands. Mynd: Skjáskot ja.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rifjar upp bankarán sem framið var í ársbyrjun 1975 í Útvegsbankanum í Kópavogi.

„Í ársbyrjun 1975 var stolið rúmlega 30 þúsund krónum (þávirði) úr Útvegsbankanum sáluga í Kópavogi. Á þessum tíma stóðu yfir framkvæmdir við húsnæði bankans og af þeirri ástæðu áttu þjófarnir greiða leið inn í bankann í skjóli nætur. Innandyra var m.a. að finna allnokkrar fötur með smámynt í og þeim stálu þjófarnir. Á litlu var að byggja við rannsókn málsins, en einhverjir voru þó yfirheyrðir án þess þó að tækist að upplýsa þjófnaðinn,“

segir í færslu lögreglunnar á Facebook. Fjallað var um málið í Mánudagsblaðinu 27. janúar það ár. „Þar er talað um bankarán og ræningjarnir sagðir vera snareygðir misindismenn!“

Segir lögreglan að málið hafi hafi fallið í gleymsku allt þar til í sumar að einn þjófanna gaf sig fram við lögregluna og greindi frá öllu saman.

„Hvað varð til þess að maðurinn játaði sök hálfri öld síðar skal ósagt látið, en sjálfsagt er alltaf gott að létta á samviskunni. Við heimsóknina á lögreglustöðina sagði maðurinn frá því að hann hefði verið að verki ásamt nokkrum vinum sínum, en þeir voru allir um fermingaraldur á þessum tíma.

Peningana földu þeir síðan á góðum stað og gengu í þá eftir þörfum. Aðspurður nánar hvað varð um peningana sagði maðurinn að þeir vinirnir hefðu notað þá til að gera sér glaðan dag. Í því fólst helst að gera vel við sig í mat og drykk og einnig að borga fyrir þá dægrastyttingu sem var vinsæl hjá unglingum á áttunda áratugnum. Um hugsanlega refsingu fyrir brotið er það að segja að málið er fyrnt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Harður árekstur á Skeiða- og Hrunamannavegi

Harður árekstur á Skeiða- og Hrunamannavegi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kattaeigendur í Árbænum óttaslegnir vegna manns sem veiðir ketti – DÝR og MAST komin í málið

Kattaeigendur í Árbænum óttaslegnir vegna manns sem veiðir ketti – DÝR og MAST komin í málið
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lést á Oasis tónleikunum á Wembley

Maðurinn sem lést á Oasis tónleikunum á Wembley
Fréttir
Í gær

Kristín neitaði að gerast njósnari fyrir Þjóðverja og mátti þola fangavist fyrir – „Þeir buðu mér gull og græna skóga“

Kristín neitaði að gerast njósnari fyrir Þjóðverja og mátti þola fangavist fyrir – „Þeir buðu mér gull og græna skóga“